
Bæjarandinn skiptir máli!
Ég fékk að kynnast þessum ótrúlega krafti sem býr í Seltirningum síðastliðið sumar þegar góður nágranni bað mig um að koma að skipulagi „gamla Stuðmannaballsins“. Það var auðsótt mál enda undirrituð ávallt til í skemmtilegt partý. Undirbúningshópurinn var blanda af öflugum bæjarbúum sem langaði að endurvekja partýstemmninguna á Nesinu og eru í dag orðnir hluti af mínum dásamlega vina og nágrannahóp. Undirbúningur gekk vonum framar og í undirbúningsferlinu komu upp margar skemmtilegar og á stundum fráleitar hugmyndir en allar gengu þær út á samvinnu bæjarbúa og félaga í bænum til að reisa við þennan vinsæla viðburð sem á árum áður dró að fólk allsstaðar af höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarandinn efldur
Á sama tíma var verið að skipuleggja opnun á listasýningu Haraldar Sigmundssonar og fannst okkur frábært að tengja bæjarbúa saman með einhvers konar bæjarhátíð líkt og gert er víða annars staðar á landinu. Við leituðum til bæjaryfirvalda sem tóku þessum hugmyndum opnum örmum og greiddu götu okkar sem best þau gátu. Útkoman varð hin skemmtilegasta bæjarhátíð þar sem fléttað var saman menningu, íþróttum og skemmtun fyrir alla bæjarbúa. Bæjarbúar skreyttu götur í ákveðnum litum og var magnað að sjá hversu vel allir tóku þessum viðburði og hversu metnaðarfullir Seltirningar eru þegar kemur að því að prýða bæinn.
Íþróttafélagið Grótta hélt sinn árlega íþróttadag þar sem saman komu iðkendur, þjálfarar og foreldrar og kepptu í ýmsum greinum. Ekki má nú gleyma sundlaugarpartýinu sem við héldum í fyrsta sinn með Zumba og vatnaboltum. Og fyrir þá sem vildu slaka á var boðið upp á lifandi tónlist. Þessi helgi samanstóð af viðburðum sem tengdu saman kynslóðir og nágranna. Og á Seltjarnarnesi blésu vindar gleði, eftirvæntingar og kátínu milli manna.
Með þessu samstillta átaki tókst bæjarbúum að efla bæjarandann og gera sér glaðan dag. En hvernig tengist upphaf greinar minnar tali um partý? Jú það var brjálað veður þessa helgi. Við héldum sundlaugarpartý í nístandi norðangarra. Það var svo kalt að Zumba var dansað með húfu og vatnið flaut upp að hálsi. Umsjónarmenn Vatnabolta mættu í kuldagalla og þurftu í fyrsta skipti að festa band í boltana svo þeir fykju ekki í burtu. Bæjarbúar skreyttu göturnar í hífandi roki og rigningu svo að hætta var á útkalli hjá björgunarsveitinni. Ekki til að bjarga skreytingum heldur fólki sem klifraði í stigum og gerði sitt besta til að hengja upp borða, skraut og lýsingu. Nágrannar sameinuðust í hugmyndavinnu, skreytingainnkaupum -- og urðu til skemmtilegar hugmyndir fyrir komandi bæjarhátíðir. Ó já, það var strax farið að tala um hvernig skreytingum yrði háttað á næsta ári, hvort sundlaugarpartý væri ekki örugglega komið til að vera og hverju mætti bæta við dagskrána. Það gladdi okkar litlu hjörtu að sjá forvitna Seltirninga ganga um göturnar í hífandi roki og rigningu til að skoða skreytingar nágrannanna og jafnvel stoppa til að spjalla við fólk sem áður þekktist lítið eða ekkert. Á fundi með Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra viku seinna var ákveðið að bæjarhátíðin fengi fastan sess því bærinn hefði á vissan hátt verið vakinn af værum svefni og bæjarbúa þyrsti í meira.
Mikil ánægja með búsetuskilyrði
Þessi samheldni er eitt sterkasta einkenni bæjarbúa. Ekki þarf að leita lengra en nokkur ár aftur í tímann þegar fílefldar konur tóku sig til og endurvöktu Þorrablót Gróttu með þvílíkum krafti að annað eins hefur ekki sést. Aðsóknin eykst ár frá ári og nú er stóra spurningin: Hvenær verður farið með blótið inn í Íþróttahús aftur?
Samheldnin er eitt mikilvægasta einkenni foreldrastarfs á Seltjarnarnesi. Sést það vel á íþróttamótum. Á stundum er spurning hvort börnin eða foreldrar skemmti sér betur. Ef hjálpar er þörf eru foreldrar boðnir og búnir til að létta undir með öðrum foreldrum því allir vita að greiðinn verður endurgoldin. Ef þú vilt láta að þér kveða þá er þér tekið opnum örmum í hverju því starfi sem þú hefur áhuga á. Þetta er samfélag sem ég vil vera hluti af. Samfélag sem vill taka höndum saman um að gera bæinn betri, virkari og síðast en ekki síst skemmtilegri.
Samkvæmt árlegri þjónustukönnun Capacent eru 92% íbúa ánægðir með búsetuskilyrðin á Seltjarnarnesi og bærinn er með hæstu einkunn allra sveitarfélaga í könnuninni eða 4,5 af 5 mögulegum.
Ég er stolt af því að búa í samfélagi með þessa einkunn og hvet alla Seltirninga til að láta rödd sína heyrast og nýta kosningarétt sinn 31. maí næstkomandi.
Skoðun

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Framtíðin fær húsnæði
Ingunn Gunnarsdóttir skrifar

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Hvað er lýðskóli eiginlega?
Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar

Búum til pláss fyrir framtíðina
Birna Þórarinsdóttir skrifar

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi
Drífa Sigfúsdóttir skrifar

Kveikjum neistann um allt land
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum?
Kári Allansson skrifar

Samtökin 78 verðlauna sögufölsun
Böðvar Björnsson skrifar

Afstaða – á vaktinni í 20 ár
Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi
París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Gestur Jónsson skrifar

Út af sporinu en ekki týnd að eilífu
María Helena Mazul skrifar

Meira að segja formaður Viðreisnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar