Renan Barao (32-1-0 (1)) gegn TJ Dillashaw (9-2-0) - Titilbardagi í bantamvigt (61 kg)
Aðalbardagi kvöldsins er titilbardagi í bantamvigtinni. Renan Barao byrjaði ferilinn ekki glæsilega. Hann tapaði sínum fyrsta bardaga en síðan þá hefur hann ekki tapað. 33 bardagar í röð án taps er nokkuð sem fáir bardagamenn geta státað af. Barao er frábær á öllum vígstöðum bardagans og hefur aðeins einu sinni verið tekinn niður í 20 tilraunum í UFC. Hann er að margra mati einn af allra fremstu bardagamönnum heims, pund fyrir pund, og ver titil sinn í fjórða skipti á laugardagskvöldið.
3 atriði til að hafa í huga
- Ekki tapað síðan 2005
- Aðeins einu sinni verið tekinn niður í 9 UFC/WEC bardögum
- Svart belti í brasilísku jiu-jitsu og hefur sigrað 14 bardaga eftir uppgjafartak
3 atriði til að hafa í huga
- 100% felluvörn í UFC
- Getur orðið fyrsti Team Alpha Male meðlimurinn til að sigra titil í UFC
- Hittir 4,86 högg á mínútu að meðaltali sem er það hæsta í bantamvigtinni.
Daniel Cormier er einn af fremstu glímumönnunum sem stigið hefur fæti í UFC-búrið. Hann hafnaði í 4. sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004 og hefur aldrei verið tekinn niður í UFC. Hann hefur einnig sýnt að hann er ágætis boxari og sigrað átta bardaga eftir rothögg. Hann berst nú í léttþungavigt eftir að hafa verið í þungavigt lengst af. Þrátt fyrir að vera fremur lítill í þungavigtinni var hann ósigraður þar og varð Strikeforce þungavigtarmeistarinn áður en samtökin lögðu upp laupana.
3 atriði til að hafa í huga
- Gæti fengið titilbardaga með sigri
- Aðeins einu sinni barist áður í léttþungavigt
- Æfir hjá AKA ásamt þungavigtarmeistaranum Cain Velasquez
3 atriði til að hafa í huga
- Hefur svakalega öfluga hægri hönd (H-bomb)
- Var þekktur fyrir að vera með granít harða höku á sínum tíma en hakan virðist vera að yfirgefa hann núna
- Elsti bardagamaðurinn í UFC

Hinn 32 ára Robbie Lawler barðist síðast gegn Johny Hendricks um veltivigtartitil UFC. Bardaginn var frábær og var Lawler nálægt því að vinna beltið. Lawler byrjaði aðeins 16 ára að æfa MMA og æfði þá með fullorðnum karlmönnum sem tuskuðu hann til. Hann er einstaklega harður af sér og er sem stendur nr. 1 á lista UFC yfir bestu veltivigtarmennina (meistararnir í UFC eru aldrei með á þessum listum).
3 atriði til að hafa í huga
- Gríðarlega höggþungur
- Hefur frábæra höku
- Aðeins 69 dagar síðan hann barðist gríðarlega erfiðan 5 lotu bardaga
3 atriði til að hafa í huga
- 18 sigrar eftir rothögg
- Á það til að leita of mikið af rothögginu sem gerir hann fyrirsjáanlegan
- 93% felluvörn í UFC
Þetta er klássískur “striker vs. grappler” bardagi. Mizugaki er góður glímumaður og sigrað fjóra bardaga í röð í UFC. Á sama tíma er Francisco Rivera með frábært Muay Thai og rotað fimm af síðustu sex andstæðingum sínum.
3 atriði til að hafa í huga
- Mizugaki verður að koma bardaganum í gólfið
- Rivera gríðarlega höggþungur og með flottar fléttur
- Þrátt fyrir að vera að upplagi glímumaður hefur Mizugaki aðeins einu sinni sigrað eftir uppgjafartak
Jamie Varner hefur tapað tveimur síðustu bardögum sínum en er þrátt fyrir það á aðal hluta bardagakvöldsins. Ástæðan fyrir því er einföld, bardagar hans eru alltaf skemmtilegir! Hann verður þó að sigra þennan bardaga ef hann ætlar að halda starfinu í UFC. James Krause er að sama skapi mjög skemmtilegur bardagamaður. Af 20 sigrum hans hafa aðeins tveir komið eftir dómaraákvörðun. Fyrsti bardagi kvöldsins gæti því hæglega orðið stórgóð skemmtun.
3 atriði til að hafa í huga fyrir bardagann
- Varner er fyrrum WEC meistarinn en tapaði titlinum til UFC bardagamannsins Donald Cerrone
- Samanlagt hafa þeir klárað 88% bardaga sinna með hengingu eða rothöggi
- Jamie Varner var í fyrsta sinn rotaður á ferlinum í febrúar á þessu ári gegn Abel Trujilo