Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, tekur tapið í Svartfjallalandi í undankeppni EM 2016 á sig, en hann brenndi af mörgum dauðafærum og skoraði „aðeins“ þrjú mörk úr átta skotum.
„Eins og ég sagði við strákanna eftir leik þá fer þetta alfarið á minn reikning. Ég klúðraði alltof mörgum færum í þessum leik til að við ættum séns. Ef ég hefði nýtt öll þessi færi hefðum við unnið þennan leik, það er nokkuð ljóst,“ segir Guðjón Valur í samtali við Sport.is sem var á leiknum í Bar.
„Það voru margir tæknifeilar og mörg dauðafæri sem við misnotuðum. Þetta var leikur sem mér finnst að við eigum að vinna en við klúðruðum þessu sjálfir," bætti fyrirliðinn við.
Hann var mjög ósáttur við eigin spilamennsku. „Það var mikið áfall fyrir mig persónulega hvernig ég spilaði hérna í dag,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur: Persónulegt áfall hvernig ég spilaði í dag

Tengdar fréttir

Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 25-24 | Vonbrigði í Bar
Ísland tapaði fyrir Svartfjallalandi ytra í dag, en leikur íslenska liðsins olli vonbrigðum.

Aron: Miðað við hvernig við spiluðum áttum við að skora 30 mörk
Landsliðsþjálfarinn ánægður með hvernig strákarnir komu til baka og töpuðu ekki með nema einu þó hann hefði viljað sjá sigur.