Jón Daði: Líður eins og ég hafi tapað leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2014 16:00 Jón Daði Böðvarsson gengur hér niðurlútur af velli í gærkvöldi. Vísir/Daníel
Jón Daði Böðvarsson var líklega manna svekktastur í íslenska landsliðshópnum eftir tap íslenska fótboltalandsliðsins í Tékklandi í gær. Það var ekki nóg að með að leikurinn hafi tapast þá kenndi þessi 22 ára gamli strákur sér um tapið en það var mögulega hægt að skrifa bæði mörk Tékka á hann. Jón Daði gleymdi sér í aukaspyrnunni í uppbótartíma fyrri hálfleiks og "hans" maður jafnaði leikinn og svo skoraði Jón Daði sjálfsmark í seinni hálfleiknum, mark sem tryggði Tékkum þrjú stig. Jón Daði var niðurbrotinn maður á Doosan-leikvanginum í Plzen eftir að lokaflautið gall og hann tjáði sig líka um vonbrigðin á twitter-síðu sinni. „Svekkjandi úrslit, líður eins og ég hafi tapað leiknum í kvöld.. Takk fyrir ótrúlegan stuðning og koma alla þessa leið. #ÁframÍsland," skrifaði Jón Daði. Jón Daði Böðvarsson hefur verið spútnikstjarna íslenska liðsins í undankeppninni haust og átti mikinn þátt í sigrunum á Tyrkjum, Lettum og Hollendingum með frábærri vinnslu og öruggum leik. Hann hefur haldið Alfreð Finnbogasyni á bekknum í síðustu leikjum íslenska liðsins.Svekkjandi úrslit, lídur eins og ég hafi tapad leiknum í kvöld.. Takk fyrir ótrúlegan studning og koma alla tessa leid. #ÁframÍsland— Jón Daði Böðvarsson (@jondadi) November 17, 2014
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki Fótbolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, píla, snóker og fótbolti Sport Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn „Frammistaðan var góð“ Enski boltinn Fleiri fréttir Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Sævar Atli skoraði og fiskaði mikilvægt víti fyrir Lyngby „Velkomin í dal draumanna“ Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Juventus vann grannaslaginn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Tvær breytingar á landsliðshópnum Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð Hermann Hreiðars tekur við HK Bayern jók forystuna á toppnum á meðan Dortmund og Leverkusen töpuðu stigum Liðsfélaginn náði þriggja marka forskoti á Emilíu Kiær Sjá meira