Ráðherra hefur ekki tekið formlega ákvörðun um flutning Fiskistofu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 12. desember 2014 16:42 Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur svarað spurningum umboðsmanns alþingis. Vísir
Ekki er búið að ákveða að Fiskistofa verði flutt á Akureyri heldur hafa áform um slíkt verið kynnt. Þetta segir í svarbréfi atvinnuvegaráðuneytisins til umboðsmanns alþingis um málið. Þar kemur fram að óvíst sé að sérstaka lagaheimild þurfi til að flytja höfuðstöðvarnar norður þar sem þær eru í Hafnarfirði en ekki Reykjavík. Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur engu að síður ákveðið að taka af allan vafa og beita sér fyrir ótvíræðri lagaheimild áður en ákvörðunin verður tekin. Um greiðslur sem starfsmönnum Fiskistofu mun standa til boða ákveði þeir að fylgja stofnuninni norður segir ráðherra að slíkt hafi áður verið gert. „Það hefur áður tíðkast að semja við starfsmenn um tilteknar greiðslur við flutning stofnana út á land, t.d. við flutning Matvælastofnunar (þeirra stofnana sem urðu að Landbúnaðarstofnun og síðar Matvælastofnun) til Selfoss, Byggðastofnunar til Sauðárkróks og Landmælinga Íslands til Akraness,“ að því er segir í svarinu. Umboðsmaður sendi ráðuneytinu bréf vegna flutningsins og vildi fá svör við því á grundvelli hvaða lagaheimilda ákvörðunin væri tekin. Umboðsmaður sendi bréfið í kjölfar beiðni starfsmanna Fiskistofu sem leituðu til hans og kvörtuðu yfir flutningunum.
Alþingi Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Fleiri fréttir „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Sjá meira