Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kynnti stefnumál sín á blaðamannafundi í Rimaskóla í Grafarvogi á skírdag. Þar kom meðal annars fram að frambjóðendur flokksins telja ljóst að flugvöllurinn verði í Vatnsmýri um fyrirsjáanlega framtíð.
Halldór Halldórsson, oddviti flokksins, boðar um leið kosningu meðal reykvískra kjósenda um framtíð flugvallarins þegar nefnd um framtíð hans, sem Ragna Árnadóttir lögfræðingur og fyrrverandi dómsmálaráðherra fer fyrir, skilar tillögum í lok árs.
Fyrri íbúakosningu frá 2001, þar sem brotthvarf flugvallarins var samþykkt, telur hann úrelta.

Við afgreiðslu aðalskipulags í borgarstjórn í nóvember í fyrra var líka felld tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Júlíusar Vífils Ingvarssonar, Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, í öðru, þriðja og sjötta sæti nú, um að flugvöllurinn yrði sýndur á núverandi stað í skipulaginu. Þau greiddu líka atkvæði gegn aðalskipulaginu.
Hildur Sverrisdóttir og Áslaug Friðriksdóttir, sem nú skipa fjórða og fimmta sæti á lista flokksins, samþykktu hins vegar aðalskipulagið og sátu hjá við afgreiðslu á tillögu samflokksfólks síns.
Halldór telur að taka þurfi upp aðalskipulag borgarinnar vegna ákveðinna þátta, en flokkurinn sé hins vegar sammála flestum áformum sem þar koma fram um þéttingu byggðar.
„Við viljum fá niðurstöðu Rögnunefndarinnar og tryggja það að höfuðborgin sé með flugvöll í einhverri mynd. Við viljum ekki að innanlandsflugið flytjist til Keflavíkur,“ sagði hann í viðtali við fréttastofu að lokinni kynningu á stefnumálunum.
Um leið sagði hann vel koma til greina að byggja í Vatnsmýri, það færi eftir útfærslum í niðurstöðum nefndarinnar um framtíð flugvallarins.
Vilja auka sveigjanleika í skólakerfinu
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum er talað fyrir auknum sveigjanleika milli skólastiga til að betur verði mætt þörfum einstakra barna, allt frá leikskóla til framhaldsskóla.
Námsleiðum eigi að fjölga í efri bekkjum grunnskóla og gefa nemendum kost á að stunda framhaldsskólaáfanga samhliða grunnskólanámi.
Flokkurinn vill líka taka upp fimm ára bekk sem tilraunaverkefni. „Nágrannasveitarfélögin hafa gert tilraunir með þetta og það hefur gengið vel. Við teljum þetta mjög áhugavert,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti flokksins.