Skoðun

Íbúðir fyrir alla

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar
Í velferðarþjóðfélagi eins og Íslandi eiga allir að eiga kost á húsnæði við hæfi. Fjölbreytt framboð húsnæðis verður að vera tryggt og verðlag í samræmi við meðallaun. Því miður er húsnæðiskerfið á Íslandi ennþá vanþroskað og því er mikilvægt að við lítum til nágrannalanda okkar og lærum af því sem þau gera vel á þessu sviði.

Samvinnan

Aðgerðir til úrbóta í húsnæðismálum landsmanna eru forgangsverkefni. Í fjárlögum 2016 er gert ráð fyrir að 2,64 milljörðum króna verði samtals varið til uppbyggingar á félagslegu húsnæði og í nýtt húsnæðisbótakerfi.

Þann 28. maí sl. sendi ríkisstjórnin út yfirlýsingu í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði. Í henni kemur fram að ríkið skuldbindi sig, ásamt ASÍ, BSRB, BHM og fleiri samtökum, til að skapa bætt skilyrði fyrir uppbyggingu á húsnæðismarkaði. Stefnt verður að því að fjölga hagkvæmum og ódýrari íbúðum til að tryggja tekjulágum fjölskyldum leiguhúsnæði til lengri tíma.

Fleiri íbúðir-lægra verð

Samkvæmt yfirlýsingunni verður félagslega leigukerfið fjármagnað með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga sem nema um 30% af stofnkostnaði. Framlag ríkis og sveitarfélaga, auk annarra þátta ættu að jafnaði að leiða til þess að leiga einstaklings með lágar tekjur nemi ekki hærra hlutfalli en um 25 % af tekjum viðkomandi. Dæmi: Manneskja með 300 þús. kr. í laun greiðir þá að hámarki 65 þús.kr. í húsaleigu.

Gert er ráð fyrir að byggðar verði 2.300 íbúðir á næstu fjórum árum, max. 600 á ári. Sumum þykir sú upphæð sem ætluð er í þetta verkefni á árinu 2016 lág en þegar rýnt er í forsendur þá kemur í ljós að útreikningar gera m.a. ráð fyrir breytingum á byggingarreglugerð og lækkun lóða og gatnagerðargjalda. Það mun skila sér í lægri byggingarkostnaði. Með þessum hætti verður mögulegt að veita tekjulágum fjölskyldum, sem hingað til hafa ekki átt kost á íbúðum í félagslegu kerfi sveitarfélaganna, aðgang að ódýru og öruggu leiguhúsnæði.

Nú þurfum við að taka höndum saman, leggja pólitíkina til hliðar og byggja upp fjölbreytt húsnæðiskerfi.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×