Aron skoraði en Werder Bremen tapaði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 20:02 Aron Jóhannsson fagnar marki sínu með liðsfélögunum. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson var á skotskónum með Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld en það skilaði liðinu þó engu því Bremen-liðið fór stigalaust heim frá Darmstadt. Darmstadt 98 vann Werder Bremen 2-1 þar sem sigurmarkið kom sex mínútum fyrir leikslok. Sandro Wagner var hetja heimamanna því hann skoraði bæði mörkin. Darmstadt 98 fór upp í tíunda sæti deildarinnar þökk sé þessum sigri en Werder Bremen hefur aftur á móti aðeins náð í samtals sjö stig í fyrstu sex leikjum sínum. Aron Jóhannsson spilaði fyrstu 82 mínúturnar í leiknum en hann var tekinn af velli í stöðunni 1-1 á 82. mínútu leiksins. Sandro Wagner skoraði sigurmarkið aðeins tveimur mínútum eftir að Aron var tekinn af velli. Aron Jóhannsson kom Werder Bremen í 1-0 strax á 19. mínútu leiksins en hann skoraði með skalla eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Theodor Gebre Selassie. Sandro Wagner jafnaði metin tólf mínútum síðar og þannig var síðan staðan í 53 mínútu. Aron Jóhannsson er á sínu fyrsta tímabili með Werder Bremen og var þarna að skora sitt annað deildarmark á tímabilinu. Fyrsta markið skoraði hann úr víti í sigri á Gladbach í lok ágúst. Aron Jóhannsson kom inná sem varamaður í fyrstu umferð en hefur verið í byrjunarliðinu síðan. Hann hefur hinsvegar verið tekinn af velli í öllum fimm leikjum sínum í byrjunarliði Bremen.Aron Jóhannsson skallar boltann inn í kvöld.Vísir/Getty
Þýski boltinn Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Hato mættur á Brúnna Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Sjá meira