Ragnar: Algjört kjaftæði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. október 2015 20:49 Ragnar Sigurðsson. vísir/getty „
Ég er mjög pirraður núna,“ sagði Ragnar Sigurðsson, miðvörður Íslands, við Vísi beint eftir tapið gegn Tyrklandi í kvöld. Tyrkir tryggðu sér sigurinn með marki úr aukaspyrnu á 89. mínútu. „Þetta var aldrei aukaspyrna á Kára - tómt rugl. Þess vegna er þetta mjög pirrandi,“ sagði Ragnar sem viðurkenndi að þetta var erfiður leikur. „Þetta var erfiður leikur þar sem hvorugt liðið var að skapa sér færi. Jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit. Tyrkirnir eru samt góðir að halda boltanum og þeir ógnuðu alltaf með einum eða tveimur hlaupum. Þetta var erfiður leikur fyrir okkur í vörninni en mér fannst við halda þeim frá hættulegum færum,“ sagði Ragnar. Hann átti erfitt með að sætta sig við aukaspyrnuna sem sigurmarkið var skorað úr. „Ég vil bara segja aftur að þetta var aldrei aukaspyrna. Þetta var algjört kjaftæði,“ sagði Ragnar sem var annars sáttur með leikinn í heildina. „Við erum frábærir í að halda skipulagi og spila þéttan varnarleik. Við erum samt ekki að skapa eins mikið og við höfum gert en kannski er það vegna þess að við erum komnir á EM,“ sagði Ragnar Sigurðsson.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Fleiri fréttir Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Mikael Egill og félögum tókst ekki að stoppa toppliðið Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Sjá meira