Þá sagði Sigmundur að hann fyndi fyrir sömu andstöðu gegn afnáminu í ákveðnum flokki stjórnarandstöðunnar og nefndi í því samhengi „flokkinn sem við töluðum um áðan“ eða fyrr í viðtalinu hér að ofan og átti þar við Samfylkinguna. „Enda með mjög sterkar tengingar inn í þann hluta verkalýðshreyfingarinnar sem sjá rautt þegar talað er um þetta,“ sagði Sigmundur og var þá spurður hvort hann ætti við lífeyrissjóðina. Hann jánkaði því og bætti við að hann ætti einnig við aðra forystumenn verkalýðshreyfingarinnar og viðurkenndi að þar ætti hann við ASÍ.
„Ef menn ynnu saman í þessa átt þá værum við komin lengra.“
Umræðan á Alþingi ekki byggð á rökum
Sigmundur var spurður út í umræðuna á Alþingi undanfarið en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að skorast undan því að taka umræðuna um afnám verðtryggingar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir bað í febrúar um sérstaka umræðu um málið og endurtók hún beiðni sína í upphafi þings.
Hún og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar létu í sér heyra þegar ljóst var að Sigmundur hugðist ekki svara beiðninni. Þá hafa samflokksmenn Sigmundar gagnrýnt hann fyrir að lúffa fyrir Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að verðtryggingunni en þingmenn Framsóknar lofuðu afnámi verðtryggingar strax eftir kosningar 2013.

Engar staðreyndir bara hávaði segir forsætisráðherra
„Það er bara hávaðinn sem kemst í gegn, ekki staðreyndir málanna,“ sagði Sigmundur sem segist vera sá forsætisráðherra sem hafi verið hvað mest viðstaddur umræður á Alþingi á síðustu árum. „Þarna er verið að hjakka í málinu bara til að fá athyglina.“
Stjórnarandstaðan hefur farið fram á að greidd verði atkvæði um hvort sérstök umræða um málið verði tekin fyrir og fer sú atkvæðagreiðsla fram í þinginu klukkan hálf ellefu í dag.
Sjá einnig: Fast skotið á Sigmund vegna afnáms verðtryggingarinnar
„Vinna við afnám verðtryggingar er í gangi í samræmi við þá áætlun sem samþykkt var 2014,“ útskýrði Sigmundur enn á ný. Hann sagði alla verkliði áætlunarinnar frá utan eins, að banna svokölluð Íslandslán sem þýða fátt eitt annað en að lántakendur greiða inn á lánin í sífellu án þess að greiða niður höfuðstólinn.

Þá spurðu þáttastjórnendur: „Hér eru öfl sem vilja ekki sleppa verðtryggingunni. Finnur þú fyrir þessum öflum?“
„Já, já, heldur betur,“ sagði Sigmundur afdráttarlaus.
„Tengjast þau Sjálfstæðisflokknum? Eða bönkunum?“
Sigmundur sagðist ekki vilja hengja þetta á ákveðna flokka en þegar gengið var á hann viðurkenndi hann að vissulega væri þarna um að ræða hluta af Sjálfstæðisflokknum. Hann nefndi síðan flokka innan stjórnarandstöðunnar líkt og áður sagði.
„Þau vinna í öfuga átt sem gerir okkur vissulega erfiðara fyrir,“ sagði Sigmundur. Hann segir að afnám verðtryggingarinnar væri komin miklu lengra ef ekki væri fyrir „varðhunda þessa kerfis.“
Útilokar ekki hlutverkaskipti í ríkisstjórn
Sigmundur tók þó fyrir að afnámið væri vonlaust mál heldur væri það eitthvað sem þyrfti að gerast því að hér á landi væri kerfi sem ekki væri búandi við.
En er Sigmundur Davíð á leið í fjármálaráðuneytið?
„Ef við ætlum að byggja samtöl okkar á hugmyndum Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur kæmumst við ekki mjög langt,“ sagði Sigmundur og kímdi. Sigríður Ingibjörg gaf það sterklega í skyn á þingi í gær að mögulega yrði Sigmundur ekki forsætisráðherra þegar kjörtímabilið væri yfirstaðið og vísaði í orð Bjarna Benediktssonar í Morgunútvarpi Rásar 2 þar sem hann nefndi að mögulega yrðu breytingar á stjórnarsamstarfinu á næstu sex mánuðum.
„En við höfum haldið þeim hugmyndum á lofti að það yrðu tilfæringar innan ráðuneytanna. Ræddum það á sínum tíma og höfum haldið möguleikanum opnum,“ viðurkenndi Sigmundur þó án þess að útskýra málið frekar.