
Aprílgabb forsætisráðherra?
Til að fyrirbyggja strax allan misskilning þá er framtíðarúrlausn í húsnæðismálum Alþingis hið þarfasta mál. Sama á við um að ráðast loksins í að byggja myndarlega yfir handritin og aðra starfsemi undir hatti stofnunar Árna Magnússonar. Mun meira tvímælis orkar einhvers konar endurbygging Hótel Valhallar á Þingvöllum. Sú hugmynd fellur illa að þeim áherslum sem Þingvallanefnd hefur í mótun um framtíðarfyrirkomulag mála á Þingvöllum og í samráði við forsætisnefnd Alþingis hvað varðar mögulega aðkomu Alþingis sjálfs að skipan mála á eða í nágrenni við sjálfa þinghelgina.
Verst eru þó vinnubrögð forsætisráðherra.
1) Ef ætlunin er að ná breiðri pólitískri samstöðu um tillögur sem tengdar verði hundrað ára fullveldisafmælinu 2018 er aðferðin ekki sú að einn flokksformaður, jafnvel þó forsætisráðherra sé, móti þær tillögur án nokkurs samráðs, geri þær heyrinkunnar sem sínar og ætli sér svo að hóa í aðra forystumenn til samþykkis. Svoleiðis hefur aldrei áður verið staðið að málum sem þessum.
2) Hvað húsakost Alþingis varðar þá er það einfaldlega ekki mál framkvæmdavaldsins. Lengi hefur staðið undirbúningur undir nýbyggingar sem leysa myndu framtíðarhúsnæðisþörf Alþingis fyrir þingnefndir og þjónustu á nefndasviði, skrifstofuaðstöðu þingmanna og þingflokka og ýmsa aðra stoðþjónustu sem nú er á víð og dreif í leiguhúsnæði í mörgum byggingum. Svo var komið síðsumars 2008 að deiliskipulag var frágengið, nákvæm húsrýmisáætlun hafði verið gerð og allt var klárt fyrir útboð hönnunarsamkeppni. Öll stefnumótun, undirbúningur og ákvarðanataka í þessum efnum var á vegum Alþingis sjálfs og nema hvað. Íslandi býr við þingbundna lýðræðisstjórn. Framkvæmdavaldið sækir umboð sitt til Alþingis en ekki öfugt. Alþingi er þar á ofan fjárveitinga- og fjárstjórnarvaldið og ákveður því sjálft þær fjárveitingar sem það telur sig þurfa til framkvæmda jafnt sem reksturs. Forsætisnefnd Alþingis hefur haft framtíðarúrlausn húsnæðismála á sinni dagskrá undanfarna mánuði og nú síðast fyrir nokkrum vikum tekið að skoða nýbyggingaráformin aftur. Þar á málið heima.
Það er einfaldlega stjórnskipulega rangt að framkvæmdavaldið standi fyrir tillögugerð um innri mál Alþingis. Slíkt er í beinni andstöðu við ákvæði þingskapalaga og eðlilega aðgreiningu valdþáttanna. Rúsínan í pylsuendanum hér er svo að forsætisráðherra hyggst ákveða eftir hvaða teikningum eigi að byggja, þ.e. aldargömlum skissum Guðjóns Samúelssonar, sem að hluta til a.m.k. áttu að leysa úr þörf nýstofnaðs Háskóla Íslands sem þá var til húsa í Alþingishúsinu fyrir stúdentagarða.
3) Þegar kemur að framkvæmdum á Þingvöllum er svipað uppi á teningunum. Í 3. mgr. 1. gr. laga um Þjóðgarðinn á Þingvöllum stendur: „Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslensku þjóðarinnar.“ Önnur grein laganna hefst á orðunum: „Þjóðgarðurinn á Þingvöllum skal vera undir stjórn Þingvallanefndar,“ sem svo Alþingi kýs í upphafi hvers kjörtímabils. Þó svo málefni Þingvalla heyri stjórnskipulega undir forsætisráðuneytið (með svipuðum hætti og forsætisráðuneytið er tengiliður Alþingis við framkvæmdavaldið) er sjálfstæði Þingvallanefndar með ýmsum hætti undirstrikað. Þannig semur Þingvallanefnd sjálf reglugerðir sem gilda innan þjóðgarðsins og forsætisráðuneytið fær þær einungis til staðfestingar. Það er því auðvitað Þingvallanefndar en ekki Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að ákveða einstakar framkvæmdir á Þingvöllum.
4) Loks Stofnun Árna Magnússonar. Dregist hefur úr hömlu að koma þeirri byggingu af stað og kyrrstaðan sl. tvö ár er alfarið á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Hún lét það verða sitt fyrsta verk að stöðva þegar hafnar framkvæmdir eftir að fyrri ríkisstjórn hafði tekið framkvæmdina inn í fjárfestingaáætlun sína í góðu samstarfi við Háskóla Íslands sem kostar verkið að hluta. Síðan hefur blasað við gestum og gangandi hola, svonefnd „gröf íslenskra fræða“, þar sem áður stóð hinn fornfrægi Melavöllur. Sinnaskipti forsætisráðherra eru ánægjuleg, en varla er sérstakt tilefni fyrir hann að hreykja sér.
Það kórónaði svo allt saman í þessu einkennilega aprílbyrjunargosi forsætisráðherra þegar hann fór óforvarendis að fimbulfamba um að e.t.v. ætti að byggja nýjan Landspítala á einhverjum allt öðrum stað. Byggingin sem er, með fullri virðingu fyrir hinum, þ.e. húsnæði Alþingis, Stofnun Árna Magnússonar og úrbótum á Þingvöllum, mest þjóðarnauðsyn er með slíku ábyrgðarleysishjali forsætisráðherra enn sett í óvissu. Það er að segja ef eitthvert mark er á honum takandi sem vonandi er ekki í þessu tilviki fremur en fleirum.
Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is
Skoðun

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar