Leyfið þeim að hafa dýrin hjá sér Viktoría Hermannsdóttir skrifar 13. maí 2015 11:00 Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á það að gæludýr eru félagslegur stuðningur fyrir eigendur sína. Þau geta hjálpað við að draga úr þunglyndi, álagi, eflt sjálfstraust og aukið gleði fólks svo eitthvað sé nefnt. Það var erfitt að fylgjast með fréttum um daginn þar sem talað var við gæludýraeigendur sem búa í íbúðum á vegum Öryrkjabandalags Íslands. Íbúunum hefur verið gert að losa sig við dýr sín þar sem dýrahald er bannað í íbúðunum. Það séu reglur sem hafi verið lengi í gildi en verið sé að framfylgja af alvöru fyrst núna. Kattareigandi lýsti á átakanlegan hátt í viðtali við fréttamann RÚV að henni hefði liðið hræðilega og grátið í tvo daga þegar barst tilkynning um að hún þyrfti að láta frá sér köttinn sinn eða að öðrum kosti missa íbúð sína. Önnur kona, mikið líkamlega fötluð, lýsti því að stundum kæmist hún ekki fram úr rúminu og yrði að bíða eftir hjálp en þá kæmi kötturinn hennar og biði hjá henni. Sem sagt einstakt samband þeirra á milli enda segist hún ekki getað lifað án kattarins síns. Það er óskiljanleg mannvonska sem fylgir því að ætla að taka frá þessu fólki dýrin sem skipta það svo miklu máli og létta því lífið á erfiðum stundum. Ég var í Þýskalandi á dögunum þar sem mun meira frjálsræði ríkir um dýrahald heldur en hér á landi. Hér eru dýr bönnuð víða en þar í landi fær besti vinur mannsins að fylgja honum hvert sem er. Hvort sem það er í almenningssamgöngum eða á barinn. Ég varð heldur ekki vör við að nokkur kippti sér upp við það. Ég get heldur ekki skilið hvernig það truflar aðra íbúa í fjölbýlishúsum að einhverjir íbúar séu með gæludýrin sín inni í íbúðum sínum. Varla eru þau æðandi um gangana. Væri ekki nær lagi að endurskoða þessi lög og leyfa fólki, sem í sumum tilvikum er einangrað vegna fötlunar sinnar, að njóta þess að hafa gæludýr hjá sér sem veita því félagsskap og gleði? Það held ég nú. Leyfið því að hafa dýrin hjá sér. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Viktoría Hermannsdóttir Mest lesið Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson Skoðun Velkomin á fjórðu vaktina Árný Ingvarsdóttir Skoðun Hvers virði er framtíðin? Um olíuleit við Ísland Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Varaflugvallagjaldið og flugöryggi Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Fjölmiðlar í kreppu Stefán Jón Hafstein Skoðun Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Hálfrar aldar svívirða Stefán Pálsson Skoðun Hefur þú tíma? Ósk Kristinsdóttir Skoðun Halldór 01.11.25 Halldór
Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson Skoðun
Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson Skoðun
Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun