Þegar fjöldamorðinginn mætti fyrir rétt í gærmorgun heilsaði hann með nasistakveðju, en sagði ekki orð. Í öryggisskyni eru réttarhöldin haldin í íþróttasal í Skien-fangelsinu, þar sem Breivik afplánar fangelsisdóm sinn.
Breivik segist þjást af einangrunarskaða og telur sig sæta ómannlegri og vanvirðandi meðferð. Hann heldur því fram að aðstæður hans jafnist á við pyndingar. Honum hefur verið haldið í einangrun í fimm ár og hefur hann því ekkert samneyti við aðra fanga. Norsk yfirvöld halda því fram að fyrirkomulagið sé hugsað sem öryggisráðstöfun þar sem óttast er að aðrir fangar muni hefna fyrir hryðjuverkin sem Breivik framdi árið 2011.

Hann hefur ekki hitt neinn utan fangelsis frá upphafi fangelsisvistar sinnar, ef frá er talinn fimm mínútna langur fundur með móður hans skömmu áður en hún dó. Breivik hefur afþakkað allar heimsóknir frá einstaklingum utan veggja fangelsisins, meðal annars frá föður sínum.
Breivik er einnig ósáttur við að allur póstur hans er lesinn af fangavörðum og hann fær einungis að eyða einni klukkustund úti á dag.
Hinn þrjátíu og sjö ára gamli Breivik var dæmdur í tuttugu og eins árs fangelsi árið 2012 fyrir að hafa drepið sjötíu og sjö manns árið 2011 í sprengingu í miðborg Óslóar og með því að skjóta alla þá sem á vegi hans urðu í Útey þar sem sumarbúðir ungliðadeildar Verkamannaflokksins voru. Sextíu og níu af fórnarlömbum Breiviks voru ungmenni. Ólíklegt þykir að honum muni nokkurn tímann verða sleppt.
Marius Emberland heldur uppi vörnum fyrir norska ríkið og segir aðstæður Breiviks réttlætanlegar í ljósi þess hve alvarlega glæpi hann framdi. Búist er við að réttarhöldin standi fram á föstudag og að Breivik muni bera vitni á morgun.