Íþróttadeild 365 spáir Þrótti tólfta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, en Þróttur er nýliði í deildinni. Þróttarar eru að spila í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2009 en þeir höfnuðu í öðru sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð. Besti árangur Þróttar í efstu deild er 5. sæti en því náði liðið árið 1954.
Gregg Ryder er þjálfari Þróttar. Þessi 28 ára gamli Englendingur hefur gert frábæra hluti með liðið síðan hann tók við því 25 ára gamall fyrir þremur árum síðan. Ryder þjálfaði áður hjá ÍBV þegar Hermann Hreiðarsson var við stjórnvölinn.

Þróttarar eiga erfiða byrjun fyrir höndum en nýliðarnir mæta efstu fimm liðum síðasta tímabils nánast í röð frá Íslandsmeisturum FH til Vals sem hafnaði í fimmta sæti.
01. maí: Þróttur – FH, Þróttarvöllur
08. maí: Þróttur – KR, Þróttarvöllur
12. maí: Stjarnan – Þróttur, Samsung-völlurinn
17. maí: Þróttur – Breiðablik, Þróttarvöllur
22. maí: Valur – Þróttur, Valsvöllur

Emil Atlason: Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára kemur Emil með mikla reynslu úr Pepsi-deildinni inn í liðið en hann hefur spilað með KR og Val í efstu deild frá 2012. Emil á að vera maðurinn sem leysir Viktor Jónson af hólmi eftir að hann fór aftur í Víking þegar kemur að markaskorun. Emil er ekki með frábæra tölfræði þegar kemur að markaskorun í efstu deild en hefur vissulega spilað mikið á kantinum. Sem framherji raðaði hann inn mörkum fyrir U21 árs landsliðið.
Dion Jeremy Acoff: Þessi 24 ára Bandaríkjamaður var magnaður í 1. deildinni í fyrra. Hann er ótrúlega fljótur, tekknískur og hraður og var eitraður á hægri vængnum. Hann verður að ná að taka skrefið upp í úrvalsdeildina og leggja sitt að mörkum við að búa til færi og skapa mörk fyrir Þróttaraliðið. Mikil ábyrgð er á hans herðum.
Sebastian Svard: Daninn 32 ára gamli hefur vissulega nýtt nafn í Pepsi-deildinni en hann er reyndur miðvörður sem var á mála hjá Arsenal í sjö ár frá 1999-2006. Hann hefur einnig leikið fyrir Mönchengladbach í þýsku 1. deildinni. Hann verður að standa undir væntingum og binda saman vörn Þróttaraliðsins.

Komnir:
Arnar Darri Pétursson frá Stjörnunni
Aron Þórður Albertsson frá HK
Brynjar Jónasson frá Fjarðabyggð
Emil Atlason frá KR
Finnur Ólafsson frá Víkingi R.
Kristian Larsen frá Danmörku
Sebastian Svard frá Danmörku
Thiago Pinto Borges FC Vestsjælland í Danmörku
Viktor Unnar Illugason frá HK
Farnir:
Alexander Veigar Þórarinsson í Grindavík
Elías Fannar Stefnisson í Þrótt Vogum
Jón Arnar Barðdal, var á láni
Viktor Jónsson, var á láni
Þróttarar hafa gert hvað þeir geta til að hafa hópinn nægilega sterkan fyrir Pepsi-deildina en það getur verið erfitt fyrir nýliða að gera sig breiða á grimmum félagaskiptamarkaðnum.
Þróttur fær reynslu úr Pepsi-deildinni með þeim Emil Atlasyni og Finni Ólafssyni sem kom frá Víkingi en Finnur getur gert mikið fyrir Laugardalsliðið verði hann í standi. Hann hefur glímt við svolítið af meiðslum undanfarið.
Hver á skora mörkin er spurningin en til að fylla í skarð Viktors Jónssonar eru komnir Emil Atlason og Brynjar Jónasson. Brynjar, sem raðaði inn mörkum í 2. deildinni fyrir tveimur árum, skoraði ekki jafn mikið í 1. deildinni í fyrra. Nú kemur í ljós hvað hann getur gert í Pepsi-deildinni þar sem hann er algjört spurningamerki.
Útlendingarnir þrír eru allir með flotta ferilskrá og þá sérstaklega Svard sem einfaldlega verður að vera það sem Þróttarar halda að hann sé. Brasilíumaðurinn Borges er týpísk tía sem getur búið til eitthvað úr engu en hann er óskrifað blað hér á landi.
Arnar Darri Pétursson kom svo frá Stjörnunni til að veita Trausta Sigurbjörnssyni samkeppni sem er bara af hinu góða en Trausti er lykilmaður hjá Þrótti og verður alltaf í markinu.
Reynsla af Pepsi-deildinni er ekki mikil í Þróttarliðinu og breiddin alls ekki nægilega mikil til að ráða við langt og strangt mót.

Það sem flestir horfa á sem martraðarbyrjun á deildinni gæti verið það besta sem gat komið fyrir Þrótt. Ef þú vilt einhvern tíma mæta bestu liðum deildarinnar þá er það í byrjun mótsins þegar liðin eru enn ryðguð og að púsla sig saman.
Liðið fer algjörlega pressulaust inn í þetta mót. Það gerir enginn ráð fyrir einu né neinu. Félagaskiptaglugginn lokar ekki fyrr en 15. maí þannig Þróttur á að eftir að fá fleiri leikmenn og liðið þarf á því að halda.
Til að Þróttur haldi sér uppi verður liðið að treysta á einhverja gleði og stemningu því mannskapurinn er ekki nógu góður til að halda liðinu uppi eins og staðan er í dag.

Spurningamerkin eru... einfaldlega hvort leikmannahópurinn sé nógu sterkur. Þjálfarinn er kokhraustur og hefur lofað því að liðið falli ekki en reynslan í liðinu af Pepsi-deildinni er ekki mikil. Hver á að skora mörkin og er breiddin nægilega mikil til að ráða við 22 leiki plús bikar?

Verða allir útlendingarnir frábærir og Trausti Sigurbjörnsson magnaður í markinu. Hann var frábær í 1. deildinni í fyrra og lítur vel út núna. Hann verður að geta tekið skrefið upp á við. Emil Atlason skorar eins og hann gerði með U21 árs landsliðinu og Dion verður ein af nýju stjörnum deildarinnar. Gangi þetta upp heldur Þróttur sæti sínu.
Í VERSTA FALLI:
Bítur gervigrasbyrjunin Þróttarar í rasssinn því það hentar bestu liðunum betur að mæta nýliðum ekki á vondum velli í hraðmótinu. Útlendingarnir ná sér ekki á strik og Emil og Brynjar fylla ekki í skarð Viktors. Fari svo spilar Þróttura aftur í 1. deildinni 2017.