Arnór Ingvi dýrasti leikmaðurinn í sögu Rapid Vín Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2016 15:57 Arnór Ingvi er á leið til Austurríkis. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason, landslisðmaður í fótbolta, hefur verið seldur frá Svíþjóðarmeisturum IFK Norrköping til austurríska liðsins Rapid Vín. Þetta kemur fram á heimasíðu sænska félagsins en Arnór Ingvi spilar með Norrköping fram að EM-fríinu og flytur sig svo um set til Austurríkis. Rapid Vín er sagt borga ríflega tvær milljónir evra fyrir íslenska landsliðsmanninn en hann verður dýrasti leikmaðurinn í sögu austurríska félagsins. Rapid Vín er sigursælasta félagið í Austurríki en það á að baki 32 landstitla. Liðið er sem stendur í öðru sæti fyrir lokaumferðina þar í landi og kemst hvorki ofar né neðar. Arnór Ingvi hefur spilað frábærlega fyrir Norrköping síðan hann gekk í raðir liðsins árið 2014. Hann hefur verið einn af bestu leikmönnum sænsku úrvalsdeildarinnar undanfarin misseri og varð Svíþjóðarmeistari með liðinu síðasta haust. Njarðvíkingurinn nýtti tækifæri sín með landsliðinu frábærlega eftir að undankeppni Evrópumótsins lauk og var á mánudaginn valinn í lokahópinn sem fer til Frakklands í sumar.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Fótbolti Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gott silfur gulli betra en hvað nú? Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Hato mættur á Brúnna Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Bröndby mætir í Víkina með tap í farteskinu Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Viðar var ekki lengi að stanga boltann í netið Tók Ara ekki nema tvær mínútur að skora Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Marta mætti og bjargaði Brasilíu Messi meiddur af velli en Miami barðist til baka án hans Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Ramsdale mættur til Newcastle Eggert Aron skoraði og lagði upp í stórsigri Brann „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Sjá meira