Frambjóðendur þurfa að skila inn meðmælum á morgun sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. maí 2016 13:49 Alls hafa fjórtán boðað framboð til embættis forseta Íslands. vísir/gva
Yfirkjörstjórnir munu á morgun veita undirskriftum væntanlegra forsetaframbjóðenda viðtöku. Hver frambjóðandi þarf að skila minnst 1.500 undirskriftum úr öllum landsfjórðungum. Framboð til embættis forseta Íslands rennur úr 21. maí næstkomandi. Alls eru fjórtán manns í framboði sem þýðir að yfirkjörstjórnir gætu þurft að yfirfara að minnsta kosti 21 þúsund undirskriftir á næstu dögum. Í flestum kjördæmum þurfa frambjóðendur að skila inn frumrit meðmælendalista á morgun, áður en yfirkjörstjórn hvers kjördæmis gefur út vottorð um meðmælendur úr kjördæminu. Stjórnir munu veita listunum viðtöku í Ráðhúsi Reykjavíkur á milli klukkan 13 og 15, Íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnarfirði á milli klukkan 13 og 15, Héraðsdómi Vesturlands í Borgarnesi á milli klukkan 10 og 12, Héraðsdómi Suðurlands á milli klukkan 10 og 12, og í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á þriðjudag á milli klukkan 9 og 14. Framboðum til forsetakjörs þarf svo að skila til innanríkisráðuneytisins eftir viku, eða fyrir miðnætti föstudaginn 20. maí, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að meðmælendur séu kosningabærir. Einni viku síðar, eða 27. maí, mun það liggja fyrir hverjir verða í kjöri, að því er segir á kosningavef innanríkisráðuneytisins.
Forsetakosningar 2016 Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagræðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Sjá meira