WOW air ætlar að bæta sjö nýjum Airbus-flugvélum við flota fyrirtækisins sem mun þá telja 24 vélar í árslok 2018.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.Þar segir að hæst beri að nefna fjórar glænýjar Airbus A330-900neo breiðþotur sem leigðar séu til tólf ára frá CIT Aerospace International.
„Þetta er nýjasta afurð Airbus framleiðslunnar en viðhengið „NEO“ stendur fyrir „New Engine Option“ sem þýðir ný tegund hreyfla sem minnkar eldsneytisnotkun um 14% miðað við núverandi tækni. Þetta er því hagkvæmasta breiðþotan á markaðnum í dag. Airbus NEO vélarnar eru þægilegri, langdrægari og hljóðlátari en fyrri gerðir. Í vélunum verða 365 sæti þar af 42 sæti sem eru stærri, breiðari og með auknu sætabili,“ segir í tilkynningunni.
„Langdrægni Airbus A330-900neo véla er 9.750 km og gæti flogið til Hong Kong eða Honolulu frá Keflavíkurflugvelli. Listaverð hverrar vélar er 291 milljónir bandaríkjadala. Þá hafa verið keyptar tvær Airbus A321ceo ( „Current Engine Option“) flugvélar keyptar beint frá Airbus og ein Airbus A321neo flugvél leigð frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease Corporation. Vélarnar verða notaðar í áframhaldandi stækkun félagsins í Norður-Ameríku og víðar en þessi viðbót þýðir 50% sætaaukningu fyrir félagið.“
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, segist hreykinn af því að geta boðið upp á „einn yngsta flugflotann í heiminum“.
„Þessi viðbót gerir okkur kleift að vaxa og leita á ný mið á fjarlægum slóðum. Þá mun stærri og nýrri floti tvímælalaust styrkja okkur í síharðnandi samkeppni þar sem glænýjar flugvélar eru mun hagkvæmari í rekstri,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
