"Ég er ekki óheiðarlegur leikmaður“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2017 23:15 Pachulia kom til Golden State fyrir þetta tímabil. vísir/getty
Zaza Pachulia, georgíski miðherjinn hjá Golden State Warriors, segist ekki vera óheiðarlegur leikmaður. Pachulia var harðlega gagnrýndur eftir fyrsta leik Golden State og San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildar NBA í fyrrakvöld. Um miðjan 3. leikhluta pressaði Pachulia Kawhi Leonard er hann fór upp í stökkskot. Þegar Leonard var búinn að skjóta boltanum tók Pachulia aukaskref í átt að San Antonio-manninum sem lenti á fætinum á Georgíumanninum og sneri sig illa. Á þessum tímapunkti var San Antonio 23 stigum yfir. Þetta atvik breytti hins vegar leiknum, Leonard spilaði ekki meira með og Golden State endaði á því að vinna leikinn 113-111. Ekki er búist við því að Leonard spili með í öðrum leik liðanna í nótt. Gregg Popovich, þjálfari San Antonio, var afar harðorður í garð Pachulia eftir leikinn á sunnudagskvöldið og sagði að það sem hann gerði hafi verið hættulegt og óíþróttamannslegt. Georgíumaðurinn þvertekur hins vegar fyrir það að vera óþokki inni á vellinum. „Á mínum 14 árum í deildinni hef ég alltaf spilað fast og gefið allt sem ég á í leikina,“ sagði Pachulia. „Svo ég er ekki tilbúinn að kvitta undir það að ég sé óheiðarlegur leikmaður. Ég elska leikinn og spila af krafti. Það var mér kennt.“ Pachulia skoraði 11 stig, tók níu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum á sunnudagskvöldið.
NBA Tengdar fréttir Hrun hjá San Antonio og Golden State komið yfir San Antonio Spurs fór afar illa að ráði sínu gegn Golden State Warriors í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í Oracle Arena í kvöld. Lokatölur 113-111, Golden State í vil. 14. maí 2017 22:25 Curry gladdi sorgmædda foreldra Sextán ára stúlka lést í Kalforníu á dögunum er hún var að taka þátt í körfuboltaleik. Fjölskyldan leitaði eftir stuðningi frá Stephen Curry, leikmanni Golden State, og fékk hann. 15. maí 2017 11:15 Svona verður lokasprettur úrslitakeppni NBA á Stöð 2 Sport Fjögur lið standa eftir í baráttunni um meistaratitil NBA-deildarinnar. 16. maí 2017 13:30 Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Sagður utan hóps á kostnað Bjarka og Orra Handbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira
Hrun hjá San Antonio og Golden State komið yfir San Antonio Spurs fór afar illa að ráði sínu gegn Golden State Warriors í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í Oracle Arena í kvöld. Lokatölur 113-111, Golden State í vil. 14. maí 2017 22:25
Curry gladdi sorgmædda foreldra Sextán ára stúlka lést í Kalforníu á dögunum er hún var að taka þátt í körfuboltaleik. Fjölskyldan leitaði eftir stuðningi frá Stephen Curry, leikmanni Golden State, og fékk hann. 15. maí 2017 11:15
Svona verður lokasprettur úrslitakeppni NBA á Stöð 2 Sport Fjögur lið standa eftir í baráttunni um meistaratitil NBA-deildarinnar. 16. maí 2017 13:30