Arna Stefanía með gull en Ásdís og Ívar fengu silfur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2017 15:15 Arna Stefanía Guðmundsdóttir. Vísir/Hanna
Ísland vann þrenn verðlaun í fyrstu þremur greinum dagsins í frjálsíþróttakeppni Smáþjóðaleikana í San Marinó. Arna Stefanía Guðmundsdóttir vann gull í 400 metra grindarhlaupi þegar hún hljóp á 59,14 sekúndum en hún vann með talsverðum yfirburðum og var sú eina sem hljóp undir einni mínútu. Arna Stefanía hefur best hlaupið á 56,08 sekúndum. Arna Stefanía sýndi mikinn styrk með því að taka gullið í þessu hlaupi því hún var lasin og með hita eins og kemur fram á fésbókarsíðu Frjálsíþróttasambandsins. Okkar kona harkaði hinsvegar af sér og landaði fyrsta íslenska gullinu í dag. Ívar Kristinn Jasonarson fékk silfur í 400 metra grindarhlaupi þegar hann hljóp á 52.67 sekúndum. Hann var hálfri sekúndu á eftir Jaques Frisch frá Lúxemborg. Ívar Kristinn var þarna að ná sínum besta persónulega árangri en hann hljóp á 52,70 sekúndum í fyrra. Ásdís Hjálmsdóttir fékk silfur í kúluvarpi þegar hún kastaði 15,39 metra en hún kastaði 42 sentímetrum styttra en Gavriella Fella frá Kýpur. Ásdís náði sínu besta kastið í sjöttu og síðustu umferð. Ásdís á best kast upp á 16,08 metra en hennar aðalgrein er spjótkast þar sem hún hefur þegar unnið til gullverðlaun á þessum Smáþjóðaleikum. Telma Lind Kristjánsdóttir keppti einnig í kúluvarpi kvenna og endaði í 5. sæti með kast upp á 13,05 metra.
Frjálsar íþróttir Ólympíuleikar Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Segir Ísland verða að vinna Slóveníu Handbolti Rúmin á hótelinu valda bakvandamálum: „Nokkrir helvíti stífir“ Handbolti Neymar á heimleið? Fótbolti Kominn úr banni en gleðin enn týnd Körfubolti Ægir: Mjög stórt fyrir klúbba að komast í þessa leiki Körfubolti Orðinn þreyttur á lélegum liðum á HM: „Þetta er algjört bíó“ Handbolti „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Fótbolti Aly eins og klettur í markinu þegar Egyptar lögðu Króata Handbolti Fleiri fréttir Neymar á heimleið? „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ „Það hjálpar ekki neitt“ Kominn úr banni en gleðin enn týnd Ægir: Mjög stórt fyrir klúbba að komast í þessa leiki Aly eins og klettur í markinu þegar Egyptar lögðu Króata „Þetta verður geggjaður leikur“ Segir Ísland verða að vinna Slóveníu „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Tómt hús hjá lærisveinum Arons Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Stjarnan 88-100 | Stjarnan á leið í undanúrslit enn einu sinni Uppgjörið: Ármann - Hamar/Þór 65-94 | Ármenningar engin fyrirstaða Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Enn eitt Íslandsmet Baldvins Þórs Sjöunda tap ÍBV í röð Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Engar Adidas-treyjur til sölu á HM Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Stjörnukonur komnar í gang Rúmin á hótelinu valda bakvandamálum: „Nokkrir helvíti stífir“ Orðinn þreyttur á lélegum liðum á HM: „Þetta er algjört bíó“ Myndasyrpa: Hart barist á æfingu í Zagreb Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann „Svo sér maður þessi skot og það fer bara fiðringur um mann“ Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Óli Stef botnar ekkert í félagaskiptum Viggós: „Galin skipti“ Sjá meira