Innlent

Síðustu skátarnir á leið heim í fyrramálið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá sjúkraflutningum á Úlfljótsvatni á fjórða tímanum á föstudag.
Frá sjúkraflutningum á Úlfljótsvatni á fjórða tímanum á föstudag. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson

Síðustu skátahóparnir sem dvöldu á Úlfljótsvatni þegar nóróveirusýking kom upp í síðustu viku munu leggja af stað heim í fyrramálið. Ekki verður tekið á móti gestum á Úlfljótsvatni næstu þrjár vikur vegna líftíma veirunnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningun frá Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni.



Hreinsunarstarf tekur nú við en stefnt er á að staðurinn geti opnað aftur eftir þrjár vikur fyrir hefðbundna hauststarfsemi.



„Í raun ætti að duga að sótthreinsa allar byggingar sem hafa verið notaðar af þeim sem veiktust, en við viljum gæta fyllstu varúðar í þessum efnum,“ segir Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns. „Hér er starfsemi fyrir hópa allt árið og við viljum vera alveg örugg um að þessi kafli sé að baki áður en við höldum inn í haustið.“



Vandamálið vonandi úr sögunni eftir þrjár vikur

Ekki verður tekið á móti gestum á Úlfljótsvatni næstu þrjár vikur vegna líftíma veirunnar.



„Það miðast af mögulegum líftíma veirunnar og eftir þann tíma ætti vandamálið að vera úr sögunni. Næstu dagar munu svo fara í það hjá okkur að ákveða næstu skref, þrífa og gefa starfsfólkinu smá hvíld. Það hefur mætt mikið á öllum en á starfsmannafundi í dag var góður andi og mikill vilji til að klára þetta verkefni með gestum okkar," segir Elín Esther.



Þá segir í tilkynningunni að auk starfsfólks og sjálfboðaliða innan skátahreyfingarinnar hafa fjölmargir lagt hönd á plóg síðustu daga.



„Rauði krossinn og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafa reynst okkur gríðarlega vel, en líka lögregla, björgunarsveitir, heilbrigðiseftirlitið, bæjaryfirvöld í Hveragerði, Garðyrkjuskólinn og margir fleiri sem hafa veitt okkur ómetanlega aðstoð og fyrir það erum við þakklát,” segir í tilkynningunni.



Á níunda tug höfðu sýkst af nóróveirusýkingu á Úlfljótsvatni á fimm dögum, að því er fram kom í frétt Vísis af málinu í dag. Tíu manns, þar af einn starfsmaður, á Úlfljótsvatni voru enn veikir af sýkingunni um hádegi í dag. 



181 erlendur skáti og foringjar voru færðir í einangrun í grunnskólann í Hveragerði aðfaranótt föstudags eftir að á sjötta tug þeirra greindust með fyrrnefnd einkenni nóróveiru. Bati flestra var þó fljótur og allir höfðu verið útskrifaðir á sunnudag.


Tengdar fréttir

Hægt að loka fjöldahjálparstöðinni í dag

Aðeins fimm af 181 skáta sem veiktist af nórósýkingu í fyrrinótt eru enn með einkenni. Svæðisfulltrúi Rauða krossins á Suðurlandi segist gera ráð fyrir að hægt verði að loka fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×