Innlent

Viðbragðsaðilar og bakland skátahreyfingarinnar skiptu sköpum

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni, segir í samtali við Vísi að það hafi gengið lygilega vel síðustu daga miðað við aðstæður.
Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni, segir í samtali við Vísi að það hafi gengið lygilega vel síðustu daga miðað við aðstæður. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson

Síðustu skátarnir sem höfðu sýkst af nóró-veiru voru útskrifaðir úr fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Þar með er formlegum aðgerðum lokið en fjöldahjálparstöðin var opnuð aðfaranótt fimmtudags eftir að fjöldi skáta á Úlfljótsvatni veiktist.



Alls voru 181 skáti fluttur í Hveragerði en af þeim veiktust um 70 á einhverjum tímapunkti.



Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni, segir í samtali við Vísi að það hafi gengið lygilega vel síðustu daga miðað við aðstæður. „Það hefur verið mjög gott að finna að það er til kerfi til að taka við svona viðburðum og að það kerfi virkar,“ segir Elín. „Allir viðbragðsaðilar sem að þessu hafa komið hafa reynst vel en svo höfum við líka notið þess að vera með afbragðsgott starfsfólk með okkur. Þá hefur bakland okkar í skátahreyfingunni líka tekið að sér mörg verkefni núna á síðustu dögum“.



Í fréttatilkynningu koma samtökin á framfæri þökkum til þeirra sem hafa komið að þessari aðgerð. „Rauði krossinn, heilbrigðisstarfsfólk, björgunarsveitir, lögregla og aðrir viðbragðsaðilar voru fljótir til að bregðast við kalli um aðstoð en líka bæjaryfirvöld í Hveragerði og fjöldi einstaklinga, meðal annars úr skátahreyfingunni, sem hefur tekið að sér stærri og minni verkefni,“ segir í tilkynningunni.



Af þeim fimm hópum sem voru á Úlfljótsvatni þegar sýkingin kom upp hafa tveir þegar flogið heim. Elín segir að þriðji hópurinn fari í fyrramálið og tveir síðustu aðfaranótt miðvikudags.



„Við erum svo að taka við nýjum hóp í kvöld sem hefur verið á hálfgerðu biðsvæði í Hafnarfirði og átti að koma á Úlfljótsvatn núna á fimmtudaginn. Skátar í Hafnarfirði tóku á móti þeim og þar hafa þeir verið í góðu yfirlæti.“



Enn á eftir að fá niðurstöður úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlitsins en Elín vonar að þær niðurstöður liggi fyrir á mánudag.



„Í dag og á morgun erum við svo að færa okkur aftur yfir í venjulega starfsemi,“ bætir Elín við að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×