Innlent

Gríðar­leg aukning í um­ferð á höfuð­borgar­svæðinu

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Rúmlega 51.700 bílar fóru daglega um Vesturlandsveg ofan Ártúnsbrekku í ágústmánuði árið 2016 en rúm 59.200 í ágústmánuði í ár.
Rúmlega 51.700 bílar fóru daglega um Vesturlandsveg ofan Ártúnsbrekku í ágústmánuði árið 2016 en rúm 59.200 í ágústmánuði í ár. Vísir/Pjetur

Gríðarleg aukning hefur verið í umferð á höfuðborgarsvæðinu á milli mánaða. Sérfræðingur á umferðarsviði Vegagerðarinnar segir fjölgunina bæði náttúrulega auk þess sem aukinn hagvöxtur eykur umferðarþunga.



Umtalsverð aukning hefur verið á umferðarþunga á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt teljurum Vegagerðarinnar á þeim stofnbrautum þar sem umferð er mæld. Til að mynda fóru rúmlega 51.700 bílar daglega um Vesturlandsveg ofan Ártúnsbrekku í ágústmánuði árið 2016 en rúm 59.200 í ágústmánuði í ár.



Friðleifur Ingi Brynjarsson, sérfræðingur hjá umferðardeild Vegagerðarinnar, segir aukningu hjá öllum teljurum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. „Við höfum verið að mæla það núna allt þetta ár gríðarlega mikla aukningu, allt upp í tæp fimmtán prósent í mars, sem er metaukning í einum mánuði.“



Hann segir aukninguna í marsmánuði þó einnig skýrast af því að páskar voru í mars í fyrra og því lítil umferð á höfuðborgarsvæðinu samanborið við mars í ár en páskar voru í apríl þetta árið.



En hvað orsakar þessa miklu alemennu fjölgun í umferðinni?

„Auðvitað er hluti af þessu náttúruleg aukning, tvö til þrjú prósent má segja að sé náttúruleg aukning. Síðan er auðvitað umferðin mikið háð því hvernig efnahagsástandið er í landinu. Ef það eru mikil umsvif og mikið að gera þá eykst umferðin og það mælist mjög mikil fylgni milli hagvaxtar, eða vergrar landsframleiðslu, og umferðarinnar. Umferðin eykst alveg í takt við uppganginn í þjóðfélaginu.“



Þá telur koma ferðamanna til landsins vitaskuld eitthvað.



„Við teljum að hún hafi einhver áhrif. Við erum að mæla núna í Hvalfjarðargöngum hvert hlutfall útlendinga er um göngin, hvert hlutfall erlendra ökumanna er um göngin, og það er um tíu prósent,“ segir Friðleifur Ingi Brynjarsson, sérfræðingur hjá umferðardeild Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×