Friðrik Jónas Friðriksson, formaður svæðisstjórnar björgunarsveitanna á Suðausturlandi, segir að á milli 20 til 25 bæir séu innlyksa vegna vatnavaxtanna en þar á meðal er Hótel Smyrlabjörg og ferðaþjónustan á Vagnsstöðum.
„Staðan á bæjunum er almennt góð en það þarf að koma einhverjum nauðsynjavörum til fólks. Við munum nota þyrluna til að fara með vörur á einhverja bæi en síðan er líka vegsamband innan svæðisins,“ segir Friðrik sem telur að bæirnir verði innlyksa í um fjóra til fimm daga.
Hann kveðst ekki vera með nákvæma tölu yfir hversu margir eru innlyksa þar sem enn sé verið að taka það saman.

„Við erum búnir að vera í sambandi við fólk á bæjunum sem eru innlyksa og taka niður pantanir til dæmis úr Nettó og Lyfju og reynum að koma vörum til þeirra síðar í dag,“ segir Friðrik.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú rétt fyrir hádegi kom fram að ekki væri útlit fyrir að hringvegurinn myndi opna fyrr en í fyrsta lagi á sunnudag en hann er lokaður við Hólmsá á Mýrum. Þá er verið að kanna aðstæður við Steinavatnabrú í Suðursveit sem lokað var fyrir allri umferð í morgun.
Friðrik segist telja það bjartsýni að geta opnað veginn á sunnudag.
„Ég myndi mála svartari vegg og segja að vegurinn verði lokaður um óákveðinn tíma. Ég mndi telja að hann yrði ekki opnaður fyrr en eftir helgi.“
Inga Stumpf tók meðfylgjandi myndir frá aðstæðunum á þjóðvegi 1 rétt austan við Hólmsá á Mýrum.