Skoðun

Ungt fólk situr eftir

Marinó Örn Ólafsson skrifar
Við ungu fólki blasir ógnvekjandi staða. Fasteignamarkaðurinn vofir yfir þeim ógnandi og samkvæmt greiningardeild Arion banka hefur kaupmáttur þess hefur aukist minna en annarra hópa og jafnvel minnkað. Þá hefur eignastaða ungs fólks ekki aukist í takt við aukna hagsæld. Brýnt er að bæta stöðu þessa hóps, sem ekki hefur notið ábata síðustu ára. Við í Samfylkingunni sjáum margar leiðir til þess.

Barnabætur séu ekki fátækrastyrkur

Fyrsta leiðin er að breyta barnabótakerfinu í átt frá núverandi fátækrabótum sem þær eru. Barnabætur eiga að vera hugsaðar til að styrkja stöðu barna landsins og unga fólksins sem elur þau upp. Þær eru mikilvægur þáttur í breytingunum sem þurfa að eiga sér stað ef við Íslendingar viljum nokkurn tímann að velferðarkerfið okkar standist samanburð við velferðarkerfi Norðurlandanna.

Betri námslán

Önnur leiðin er að endurskoða námslánakerfið með það í huga að innleiða námsstyrki eða breyta hluta láns í styrk eftir að námi lýkur. Tryggja þarf fullt jafnrétti til náms þannig að ekki halli á ákveðna hópa sem vilja hefja nám og afborganir mega ekki vera íþyngjandi fyrir fólk sem hlýtur menntum í fræðum láglaunastarfa. Þannig má koma til móts við ungt fólk sem gengur menntaveginn og jafna stöðu þeirra sem vilja styrkja samfélagið með auknu hugviti og verðmætasköpun, en verða af tækifærum til eignamyndunar og tekjuöflunar á námstíma.

Endurreisum félagslega húsnæðiskerfið

Þriðja leiðin er að auka framboð af félagslegu húsnæði svo að ekki verði jafnmikil neyð vegna húsnæðisskorts, þegar við missum aftur stjórn á húsnæðismarkaðnum. Þetta má gera í samstarfi við verkalýðshreyfinguna og er sú vinna þegar hafin. Það þarf að bæta í til að takast á við næstu krísu. Þá þarf einnig að gera almennan leigumarkað hæfari til að takast á við aukinn þrýsting frá Airbnb, til dæmis með því að veita skattafslátt vegna útleigu á einni íbúð og auka þannig tekjumöguleika leigusala til að fleiri sjái sér hag í því að leigja á almennum markaði frekar en til skammtímagistingar ferðamanna.

Ungu fólki líður illa

Fjórða leiðin til að bæta stöðu ungs fólks er að gera betur í geðheilbrigðismálum. Ungt fólk kljáist nú við geðsjúkdóma í auknum mæli og nauðsynlegt er að skoða hvar má bæta í. Aðgengilegir sálfræðingar í framhaldsskólum, háskólum og heilsugæslu gerðu ungu fólki mun auðveldara að sækja sér þá hjálp sem það þarf.

Með þessum aðgerðum mætti bæta stöðu ungs fólks til muna. Það gerði því kleift að koma fótunum undir sig og öðlast þann stöðugleika sem nauðsynlegur er og menn öðlast flestir ekki fyrr en þeir komast á miðjan aldur. Við getum ekki leyft okkur að líta fram hjá vanda ungs fólks lengur.

Höfundur skipar fjórða sæti lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi




Skoðun

Sjá meira


×