Barcelona er áfram með fjögurra stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 0-2 sigur á Athletic Bilbao í kvöld.
Lionel Messi hefur verið óstöðvandi í byrjun tímabils og hann var á skotskónum í dag.
Messi kom Barcelona yfir á 36. mínútu með sínu tólfta deildarmarki í vetur.
Paulinho gulltryggði svo sigur Börsunga þegar hann fylgdi eftir skoti frá Luis Suárez sem Kepa Arrizabalaga varði. Lokatölur 0-2, Barcelona í vil.
Börsungar gerðu engin mistök í Baskalandi
