Opið bréf til Gísla, Eiríks og Helga sem eru að reyna að hnoða saman ríkisstjórn Kári Stefánsson skrifar 22. nóvember 2017 07:00 Ágæta fólk, það er stundum erfitt að horfa til baka og þurfa að sætta sig við sviðna jörð í slóð. Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir sjálfshjálparbækur, tólf þrepa prógrömm, alla hugleiðslu heimsins og jóga og lífrænt ræktaða hollustu þá var maður bara það sem maður var og því breytir ekkert sem maður gerir í dag. Tíminn er grimmur og línulegur, leyfir manni ekki að breyta því sem orðið er. Minn fortíðardjöfull á rætur sínar í því hvernig ég brást börnunum mínum þegar þau voru lítil, átti engan tíma handa þeim, eyddi honum öllum í að þjóna sjúklegum metnaði vísindamanns sem stóð í þeirri trú að það eina sem skipti raunverulega máli væri að sýna heiminum að hann væri sniðugri en allir aðrir, án tillits til þess hvort hann væri það eða ekki. Þegar hugurinn leitar til þess tíma þegar börnin mín voru lítil, sem hann gerir oftar með ári hverju, drúpi ég gjarnan höfði, augun vísa til jarðar og sjá þá ekki drulluga sokka, drullusokka, á fótum mér heldur fætur ótrúlegs drullusokks í skónum mínum. Hvílíkur drullusokkur er sá maður sem vanrækir börnin sín af hvaða ástæðu sem er. Sá maður sem gerir það til þess að þjóna hégómlegum metnaði sínum er glæpamaður sem enginn ætti að veita uppreist æru og enginn upplýstur aðili myndi veita uppreist æru nema kannski dómsmálaráðuneyti lýðveldis á lítilli eyju í Norður-Atlantshafi. Það er engin skylda foreldra ríkari eða göfugri en sú að hlúa að börnum sínum, allt annað bliknar hjá henni, verður að hjómi. Það er líka engin skylda samfélags ríkari eða göfugri en sú að hlúa að börnum sínum, allt annað bliknar hjá henni, verður að hjómi. Þess vegna hvet ég ykkur ágæta fólk og unga, sem eruð að reyna að hnoða saman stjórnarsáttmála að taka skref aftur á bak og spyrja hvað þyrfti að vera í honum til þess að tryggja eins vel og mögulegt er að þið gætuð horft til baka og sagt að þótt allt annað hefði farið til fjandans þá hefðuð þið hlúð að börnum þessa lands fyrst og fremst og eins og vera ber. Það er skylda ykkar að svara þessari spurningu áður en þið snúið ykkur að öðru. Hagsmunir barnanna hljóta að vera í forgangi, alltaf og þeim má aldrei fórna fyrir eitthvað annað. Fulltrúar flestra stjórnmálaflokka á Íslandi virðast sammála því að það væri æskilegt og markmið í sjálfu sér að allir þegnar þessa lands byrji sitt líf með jöfn tækifæri. Það verður líklega aldrei svo, en eitt af því sem góðir leikskólar og barnaskólar og skólar allt upp að stúdentsprófi geta gert er að bæta aðstöðu barna og unglinga sem eru vanrækt á heimilum sínum, af foreldrum eins og mín börn voru af mér. Það er nefnilega til alls konar vanræksla á börnum og hún finnst á ótrúlegustu stöðum. Góðir skólar geta oft hjálpað börnum að forðast afleiðingar hennar að minnsta kosti að hluta. Það finnast líka hvergi betri tækifæri til þess að hvetja börn og unglinga til dáða en í skólunum og því yngri sem þau eru þeim mun næmari eru þau og móttækilegri fyrir gersemum skólanna. Þegar talið berst að menntakerfinu er því gjarnan haldið fram að það sé brýnust þörf á því að auka fjárútlát til háskólanna og í samkeppnissjóði til vísindarannsókna. Ég er þessu algjörlega ósammála. Háskólastigið þarf fyrst og fremst á því að halda að skólarnir séu allir sameinaðir, vegna þess að okkar litla samfélag ræður ekki við nema einn háskóla sem stendur undir nafni. Síðan þarf að skrúfa til baka þá gengisfellingu háskólanáms á Íslandi sem á meðal annars rætur sínar í því að fjárveiting til háskóladeilda hefur gjarnan markast af fjölda nemenda sem hefur búið til hvata til þess að halda í námi fólki sem á alls ekki heima þar. Afleiðingin af því er síðan sú að háskólarnir íslensku geta sýnt fram á að við veitum minna fé á nef hvert meðal háskólanema en gert er í háskólum í löndunum í kringum okkur sem gera meiri kröfur til nemenda. Það er líka út í hött að halda því fram að það sé góð fjárfesting fyrir íslenskt samfélag að auka til muna ríkisstyrki til vísindarannsókna. Kostnaður við vísindarannsóknir hefur aukist til muna á síðustu árum meðal annars vegna þess að ný tækni sem hrannast upp með ótrúlegum hraða er dýrari en svo að það sé réttlætanlegt að krefjast þess að okkar litla samfélag borgi fyrir hana og án hennar eru vísindamenn okkar sjaldan samkeppnishæfir. Þess vegna er reynslan sú að vísindarannsóknir á Íslandi sem eru fjármagnaðar eingöngu fyrir innlent fé og undantekningarlítið af ríkinu hafa tilhneigingu til þess að vera dapurlegur kyrkingur þótt á því séu merkilegar undantekningar og sumar fallegar. Það er hins vegar nauðsynlegt fyrir íslenskt samfélag að mennta þjóðina til þess að skilja nútíma vísindi og þau tækifæri sem eiga rætur sínar í þeim. Það gerum við fyrst og fremst með því að hlúa að menntum barna og unglinga alla leið frá leikskólum og upp að stúdentsprófi og síðan með því að styrkja kennslu í einum háskóla sem gerir miklar kröfur til nemenda. Mikilvægur þáttur í þeirri aðhlynningu er að bæta kjör kennara til muna vegna þess að það sem skiptir máli í skólakerfinu eru fyrst og fremst kennarar sem vinna þar og eins og stendur reynist erfitt að laða að besta fólkið af því það getur ekki framfleytt sér af launum sem standa til boða. Ef við tökum nú öll börn og unglinga á Íslandi og búum til úr þeim samnefnara sem við köllum Barn þá má leiða að því rök að ríkisstjórnin beri svipaða ábyrgð á því og faðir og Alþingi svipaða móður. Þessar stofnanir tvær verða að gera sér grein fyrir því að þeim ber skylda til þess að hlúa að Barninu áður en þær fara að sinna öðrum skyldum. Þær mega ekki fórna einni máltíð barnsins fyrir hégóma eins og gat í gegnum fjall eða breikkun þjóðvega eða skattaafslátt fyrir atvinnugrein eða sendiráð á Indlandi. Þær mega ekki fórna því að lesa fyrir barnið eða hjálpa því með heimavinnu eða að leika við það til þess eins að sýna heiminum að þær aðhyllist göfuga pólitíska fílósófíu. Allt annað verður að víkja fyrir hagsmunum Barnsins, það á það skilið án tillits til alls annars og svo er það líka framtíð þessarar þjóðar. Látið mig vita gott fólk, það er vond tilfinning að hafa verið lélegt foreldri. Gangið úr skugga um að þið rísið ekki upp úr ráðherrastólum með hana í hjarta ykkar. Sorgin sem fylgir því er of þungbær. Fyrsti kapítulinn í stjórnarsáttmála ykkar ætti að fjalla um byltingarkenndar umbætur í íslensku skólakerfi, í leikskólum, í grunnskólum og framhaldsskólum af öllum gerðum. Ekki gleyma þessu vegna metnaðar á öðrum sviðum. Það væri einfaldlega of ljótt. Verið ekki drullusokkar. Höfundur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Kári Stefánsson Mest lesið Hugleiðingar leikskólakennara í verkfalli Elín Gíslína Steindórsdóttir Skoðun Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir,Tinna Björg Kristinsdóttir Skoðun Opið bréf til þingmanna frá húsmóður í Vesturbænum Margrét Kristín Blöndal Skoðun Menntun í gíslingu hrímþursa Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Hópur Sjálfstæðismanna Skoðun Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen Skoðun Opið bréf til kennara og stjórnenda allra framhaldsskóla Klara Nótt Egilson Skoðun Ríkisstjórnin þarf aðhald Svandís Svavarsdóttir Skoðun Rauð viðvörun í íslenska menntakerfinu Tinna Steindórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðingar leikskólakennara í verkfalli Elín Gíslína Steindórsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til þingmanna frá húsmóður í Vesturbænum Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Opið bréf til kennara og stjórnenda allra framhaldsskóla Klara Nótt Egilson skrifar Skoðun Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir,Tinna Björg Kristinsdóttir skrifar Skoðun Sjúkraflug í vondri stöðu - hvenær verður brugðist við? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi Framsóknarflokksins Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Menntun í gíslingu hrímþursa Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Viltu vinna með framtíðinni? Helga Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Færum fanga úr fortíðinni Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Getur hver sem er sinnt besta starfi í heimi? Sveinlaug Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hugleiðing um listamannalaun IV Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Hópur Sjálfstæðismanna skrifar Skoðun Sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er ekki lengur valkostur Ísabella Ósk Másdóttir,Guðni Þór Þórsson,Arent Orri J. Claessen skrifar Skoðun Minnihlutavernd í fjöleignarhúsum Sigurður Orri Hafþórsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf aðhald Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Undir faglegri leiðsögn kennara blómstra börn Jónína Hauksdóttir skrifar Skoðun Donald Trump og tollarnir Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Rauð viðvörun í íslenska menntakerfinu Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Varasjóður VR Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Byrlunar- og símamálið: þáttur blaðamanna féll á fyrningu Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Allar konur eru konur. Punktur. Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hver er ábyrgð barna? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Rafbílar eru ódýrari Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Ég er foreldri, ég er kennari Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er ekki lengur valkostur Ísabella Ósk Másdóttir,Guðni Þór Þórsson,Arent Orri J. Claessen skrifar
Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar
Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar
Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar
Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar