Með samfélagsmiðlum hefur skapast offramboð á skoðunum. Um það verður vart deilt. Hliðvarsla fjölmiðla er horfin og hver og einn er getur sagt það sem honum sýnist opinberlega. Allir eru komnir með gjallarhorn í hendur og nota það óspart. Hugsanlega mun almenningur átta sig á því með tíð og tíma að hver maður er ábyrgur orða sinna. Og jafnvel að greinarmunur er á skoðunum og staðreyndum. Íslendingar hafa alltaf verið skoðanaríkir og á umliðnum árum hefur verið tíð skoðana.
Ætla mætti, sé litið til lögmála markaðarins hvað varðar framboð og eftirspurn, að þetta myndi leiða til þess að viðhorfspistlar fjölmiðlanna, myndu gefa eftir og jafnvel hverfa. En, það er ekki. Viðhorfspistlarnir njóta enn sem fyrr mikilla vinsælda.
Afar athyglisvert er að rýna í lista yfir þá viðhorfspistla sem mest voru lesnir á árinu, samkvæmt vefmælingum sem Vísir hefur aðgang að. Þeir varpa ljósi á að viðburðaríkt ár er nú að hverfa í aldanna skaut sem og það þetta að það sem fólki er efst í huga er ekkert endilega það sem leggur undir sig fréttasíður fjölmiðlanna.
En, vissulega er það svo að þeir atburðir sem hæst ber á árinu; alþingiskosningar, aðdragandi þeirra ekki síður auk skelfilegra fregna af lengstum óljósum atburðum sem leiddu til dauða ungrar konu, Birnu Brjánsdóttur, rötuðu í skrif greinahöfunda. Annað hvort væri það nú. Pistlarnir sem nutu mestrar athygli varpa glöggu ljósi á það sem helst var í deiglunni í íslensku samfélagi á árinu. Pistlahöfundar Fréttablaðsins, þau Sif Sigmarsdóttir og svo Logi Bergmann náðu að grípa athygli lesenda. Í þeim pistli sem naut mestrar athygli á árinu 2017, samkvæmt vefmælingum, er vaðið beint í vélarnar. Þar er mál málanna undir - það sem leiddi til þess að á Íslandi var gengið til kosninga.
1. Hann Benedikt pabbi hans Bjarna
Sif Sigmarsdóttir, hinn snjalli pistlahöfundur Fréttablaðsins, greip athygli lesenda trausta taki með ögrandi fyrirsögn: Til varnar pabba Bjarna Ben. Og Sif hefur pistilinn bratt: „Hvað eiga dæmdi barnaníðingurinn Hjalti Sigurjón Hauksson og Sjálfstæðisflokkurinn sameiginlegt?“
Sif er mikið niðri fyrir og beinir spjótum sínum án nokkurrar miskunnar að Sjálfstæðisflokknum; segir fall ríkisstjórnarinnar ekki pabba Bjarna að kenna heldur vegna þess að einn ganginn til gerðu ráherrar flokksins sig seka um „leyndarhyggju og svívirðilegan valdhroka – ef ekki beinlínis valdníðslu. Enn á ný sýnir flokkurinn að hann starfar hvorki í þágu umbjóðenda sinna, fólksins í landinu, né að hag þeirra. Í stað þess að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og veita þeim svör er allt gert til að leggja stein í götu þeirra. Og hvers vegna? Jú, samtryggingin er hornsteinn Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn starfar fyrst og fremst í þágu sín sjálfs.“
Varla er Sif í hávegum höfð í Valhöll eftir þessi skrif: „Fýlan er af þeim rotna kúltúr sem ríkir innan þeirra eigin flokks.“ En, pistillinn var lesinn víða og af mikilli athygli.
2. Þjóðin sameinast í kvíða, ótta og sorg
Í öðru sæti er svo annar pistlahöfundur Fréttablaðsins, Logi Bergmann, sem fjallaði einmitt um morðmálið skelfilega áðurnefnt sem er því miður eitt þeirra mála sem er einkennandi fyrir árið 2017.

3. Ungir karlmenn í sjálfsvígshugleiðingum
Þriðji mest lesni pistillinn sem birtist á þessu ári er settur fram undir sláandi fyrirsögn: Ungir karlmenn sem vilja deyja en það er Ingólfur Sigurðsson sem skrifar. Þessi pistill birtist síðla í ágústmánuði. Fyrirsögnin gefur skýrt til kynna hvað er til umfjöllunar en um er að ræða ávarp til ungra karlmanna sem eru í sjálfsvígshugleiðingum. Stíllinn er áhrifaríkur:

Tölfræðin sýnir að sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna hér á landi en skrif Ingólfs koma í kjölfar þess að tveir ungir kalrmenn sviptu sig lífi á geðdeild Landspítalans. Ingólfur gagnrýnir heilbrigðiskerfið harðlega í pistli sínum og bendir til að mynda hvernig háttar með sálfræðiþjónustu:
„Ég veit að meðferðarúrræðin sem eru í boði eru djók. Klukkutími hjá sálfræðingi upp á tólf þúsund kall? Ég skal koma ef ég má borga sálfræðitímana mína á raðgreiðslum næstu tólf árin. Geðsvið Landspítalans er djók. Ekki fólkið sem vinnur þar, alls ekki, en kerfið. Hvernig getur verið opnunartími á geðdeild? Að vera synjað um hjálp, bent á að fara niður á Landspítalann í Fossvogi. Þvílíka niðurlægingin.“ Pistill Ingólfs hitti marga í hjartastað.
4. Brennivínið í búðirnar eða ekki
Samkvæmt mælingum nær rithöfundurinn Stefán Máni fjórða sæti á lista yfir þá viðhorfspistla sem mesta athygli vöktu á árinu. Hann fjallar um mál sem bar hátt á árinu, 2017 var enn eitt árið þar sem tekist var á um það hvort leyfa eigi sölu áfengis í búðum. Teitur Björn Einarsson þingamaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir áfengisfrumvarpinu svokallaða í upphafi árs og enn var hart tekist á um málið, innan þings sem utan. Reyndar er athyglisvert útaf fyrir sig hversu heitar skoðanir landsmenn hafa á þessu máli. En, það er reyndar allrar athygli vert.

Fyrirsögn pistilsins, Frelsi til sölu, er tilvitnun í plötu eftir Bubba. Stefán Máni, sem teflir í pistli sínum saman hófdrykkjufólki og þeir sem ekki ráða við slíkt, og segir: „Einkavæðing á áfengissölu er frelsi, þá er alveg eins hægt að segja að við sem þjóð séum frjáls að því að takmarka áfengissölu við sérverslanir í eigu Ríkisins. Þetta hlýtur að gilda í báðar áttir.“
5. Hin umdeilda Lánastofnun íslenskra námsmanna
Ekki er ár með árum nema tekist sé á um LÍN. Birgitta Sigurðardóttir náði eyrum námsmanna og annarra þeirra sem láta sig þessa mikilvægu stofnun einhverju varða í pistli sem er með krassandi fyrirsögn: Aumingjavæðing LÍN.

„Jafnrétti til náms er sérstaklega mikilvægt þar sem við erum einangruð þjóð í norðri. Af þeim sökum er nauðsynlegt að við sem þjóð hvetjum Íslendinga til að ferðast um heiminn og koma með nýja þekkingu til landsins sem ýtir undir þróun og styrkir bæði mannauð fyrirtækja og samfélagið í heild. Mikil samstaða er á meðal námsmanna um að það þurfi að breyta þessari mismunun sem LÍN ýtir undir með tekjuskerðingu. Framfærslan er einfaldlega of lág og frítekjumarkið á að vera hærra. Því tel ég að LÍN stuðli ekki að jöfnum tækifærum til náms óháð efnahag. Leyfum námsmönnum að öðlast reynslu og þekkingu á vinnumarkaði. Hættum að refsa þeim nemendum sem sýna dugnað og frumkvæði en hvetjum þá frekar til vinnusemi og starfsreynslu. Tryggjum að allir íslenskir nemendur óháð efnahag geti sótt sér menntun erlendis.“
6. Fæðingarorlofið sjóðheita
Enn eitt fyrirbærið sem lengi hefur verið umdeilt á Íslandi er fæðingarorlofið. Sæunn Kjartansdóttir gerir það að umfjöllunarefni sínu í pistli sem flaug hátt, undir yfirskriftinni, sem er í spurnarformi: Hver er tilgangur fæðingarorlofs?

„Við erum ekki lengur fátæk þjóð sem skortir aðgang að gagnreyndri þekkingu. Hvort sem við lítum til mannúðarsjónarmiða, almennrar skynsemi eða rannsókna í geðheilbrigðis- og hagfræði er niðurstaðan alltaf sú sama: Fjármunir sem fara í að styrkja fjölskyldur fyrstu ár barna þeirra skila samfélaginu mestum hagnaði og spara með tímanum gríðarleg útgjöld. Hversu öfluga starfskrafta vinnumarkaðurinn fær í framtíðinni veltur því að verulegu leyti á að foreldrum þeirra hafi verið gert kleift að sinna þeim þegar þeir þurftu mest á því að halda.“
7. Gildi grípandi fyrirsagna
Flestir pistlar sem ná flugi eiga það sameiginlegt að vera með grípandi fyrirsögn og það á sannarlega við um pistil Óskars Steins Ómarssonar: Klamydía í frímínútum.

„Svona er þjónustan við nemendur í Kongsberg videregående skole í Noregi, þar sem ég lærði til stúdentsprófs. Svona er þetta ekki á Íslandi. Í flestum íslenskum framhaldsskólum eru ekki hjúkrunarfræðingar. Enginn sálfræðingur til að tala við ef manni líður illa og hvorki hægt að nálgast getnaðarvarnir né athuga hvort maður hafi nælt sér í klamydíu. Á sama tíma er sjálfsmorðstíðni ungmenna óásættanlega há hér á landi, útbreiðsla kynsjúkdóma með því hæsta sem gerist í allri Evrópu og brottfall úr skólum mikið,“ skrifaði Óskar Steinn í þessum áhrifaríka pistli sem flaug hátt á árinu.
8. Mál málanna
Næsti pistill á lista yfir þá sem mest voru lesnir á Vísi samkvæmt vefmælingum snýr að máli málanna. Því sem setti helst mark sitt á árið 2017. Nefnilega sú atburðarás sem leiddu til þess að stjórnin sprakk. Þungi er í fyrirsögninni: Í hvers konar samfélagi viljum við búa? En, það eru leikararnir Bergur Þór Ingólfsson og Þröstur Leó Gunnarsson sem skrifa.

Grein þeirra félaga, sem birtist um miðjan júlímánuð, náði eyrum þjóðarinnar og þeir setja fram áskorun: „Hreyfum við hugsunarhætti okkar. Hættum að setja ábyrgðina á þolendur. Krefjumst ábyrgðar af ráðamönnum. Siðmenning er að hugsa fyrst um hag þeirra sem höllum fæti standa.“
9. Opið bréf til þingmanna
Þessi er fyrirsögn pistils sem komst inn á topp tíu lista: Opið bréf til þingmanna. Klassískari verður fyrirsögn viðhorfspistils vart: Opið bréf til þingmanna. Guðjón Jensson skrifar og hefur pistil sinn á því að segja af því að hann sjálfur hafi greinst með krabbamein:
„Að greinast með krabbamein er mikið áfall. Eg undirritaður varð að sætta mig við þetta undir lok október 2015. Síðan hefi eg verið í ótal rannsóknum, meðferðum þar sem geislum og meðulum hefur verið beitt á meinsemdina, skurðaðgerð og eftirmeðferð. Alltaf hef eg hitt mjög vingjarnlegt og hjálpsamt starfsfólk sem unnið hefur sín störf af mikilli nærgætni og alúð, þekkingu og reynslu.“

10. Og ekki má gleyma H&M
Sif Sigmarsdóttir er hér með sæmd titlinum viðhorfspistladrottning ársins. Hún er hér með annan pistil sinn sem nær inn á topp tíu yfir þá pistla sem mest voru lesnir á árinu. Sif kann að búa til fyrirsagnir en hér fjallar hún um mál sem heldur betur var á döfinni á árinu: Opnun verslunar H&M á Íslandi: Viðskiptavinir grafnir lifandi í H&M.
Sif kann að halda um penna og hún gerir neysluhyggjuna að umfjöllunarefni. Á heimspekilegum nótum. Niðurstaða hennar er nöturleg. Hún segir að homo sapiens sé eina dýrategundin sem getur tjáð sig um hluti sem ekki eru til. Api léti aldrei af hendi banana í skiptum fyrir loforð um hundrað banana í himnaríki að lífinu loknu.
„Api léti aldrei banana af hendi fyrir pappírssnepil með mynd af Jóni Sigurðssyni,“ skrifar Sif og klikkir út með:
„Í tilefni opnunar H&M í dag er rétt að velta fyrir sér visku fortíðar; annars vegar visku apans sem tæki aldrei fram veskið í H&M, hins vegar nægjusömu húsfrúarinnar á plakatinu sem gerði það ekki heldur. Því í hvert sinn sem við afhendum tíma okkar í skiptum fyrir óþarfa sem endar sem óbreytt rusl grafið í jörðu urðum við tíma okkar; við urðum líf okkar. Við erum jörðuð þegar við erum öll. Er ekki óþarfi að við séum grafin lifandi?“
...
Og þannig eru þeir pistlarnir sem nutu mestrar athygli en fjölmargir pistlar aðrir flugu hátt á árinu; vöktu athygli og höfðu áhrif. Vísir fagnar skoðanaskiptum og hvetur lesendur til að senda inn greinar og pistla, sé sá gállinn á þeim. Slíkt efni má senda á ritstjorn@visir.is