Það kostar sitt að ná til sín feitustu bitunum og það þarf því ekki að koma á óvart að risarnir í deildinni hafi verið í aðalhlutverki það sem af er. Stóru strákarnir borða fyrst en svo keppa hinir um molana.
Risinn meðal risanna hefur aðsetur í Kaplakriknum. FH-ingar hafa farið mikinn á markaðnum og það er augljóst að slakasti árangur félagsins í fimmtán ár hefur hreyft við mönnum og kallað á alvöru liðsstyrk. Ólafur Kristjánsson er tekinn við af Heimi Guðjónssyni og hann fær fullhlaðið vopnabúr í endurkomu sinni í Krikann.
Fréttablaðið hefur tekið saman hvaða leikmenn eru komnir og farnir hjá liðunum og í framhaldinu höfum við gefið hverju liði einkunn fyrir framgöngu þeirra.
FH-ingar fá hæstu einkunn en næstir þeim koma Íslandsmeistararar Vals sem ætla ekki að sofna á verðinum þó að titillinn sé í húsi.
KR-ingar hafa einnig styrkt sig en líkt og Blikar þá búa þeir að því að hjá félaginu eru að koma upp sterkir árgangar ungra leikmanna.
Víkingur fékk einn feitasta bitann í Sölva Geir Ottesen en missti líka öfluga menn til FH og Vals.
Menn horfa hins vegar spurnaraugum til bæði Garðabæjar og Akureyrar en Stjarnan og KA hafa verið mjög öflug á markaðnum síðustu ár. Bæði lið áttu frábæra spretti síðasta sumar og vantar kannski ekki mikið upp á til að komast enn ofar. Það hefur hins vegar ekki verið mikið að frétta þaðan sem hlýtur að breytast á næstu vikum sem um leið myndi þýða hærri einkunn.
Nýliðar Fylkis og Keflavíkur hafa verið mjög rólegir og það er óvissuástand í bæði Eyjum og Grindavík sem hafa misst feita bita. Þar ættu menn að hafa áhyggjur ef ekki bætist í hópinn.
FH

Komnir
Geoffrey Castillion frá Víkingi
Guðmundur Kristjánsson frá Start
Hjörtur Logi Valgarðsson frá Örebro
Kristinn Steindórsson frá Sundsvall
Farnir
Emil Pálsson til Sandefjord
Kassim Doumbia, Matija Dvornekovic
Hafnarfjarðarliðið spilar beinskeyttari sóknarleik á markaðnum en inni á vellinum síðasta sumar. Þriðja sætið virðist hafa farið illa í menn í Krikanum og Ólafur Kristjánsson fær allt til alls til að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn. Og rúmlega það!
Valur

Komnir
Kristinn Freyr Sigurðsson frá GIF Sundsvall
Ívar Örn Jónsson frá Víkingi R.
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Farnir
Nicolas Bogild
Íslandsmeistararnir endurheimtu besta leikmann Íslandsmótsins 2016 og bættu við góðum leikmanni í sóknina sem er væntanlega ólmur í að kalla fram Íslandsmeistaraformið sitt. Fengu svo öflugan liðsstyrk til að auka breiddina á vinstri vængnum.
KR

Komnir
Björgvin Stefánsson frá Haukum
Kristinn Jónsson frá Breiðabliki
Pablo Punyed frá ÍBV
Farnir
Michael Præst
Robert Sandnes
Stefán Logi Magnússon
Rúnar Kristinsson þarf að sýna að hann geti gert Inkasso-framherja að spilara í efstu deild og virkja Salvadorann til að lífga aðeins upp á annars líflaust miðjuspil liðsins. Það er mikill liðsstyrkur í Kristni Jónssyni og er lítið farið sem skiptir máli.
Breiðablik

Komnir
Jonathan Hendrickx frá Leixoes
Farnir
Dino Dolmagic
Ernir Bjarnason í Leikni R.
Kristinn Jónsson í KR
Sólon Breki Leifsson í Vestra
Bakvarðaskiptin eru góð en verst að þeir nota ekki sama fót til að sparka í boltann. Blikarnir hafa aðeins fengið einn en það er gæðaleikmaður sem FH saknaði mikið eftir að hann fór. Munu ekki sakna Kristins eins og hann spilaði í ár.
Víkingur R.

Komnir
Sölvi Geir Ottesen frá Guangzhou R&F
Farnir
Geoffrey Castillion í FH
Ívar Örn Jónsson í Val
Viktor Bjarki Arnarsson í HK
Á sama tíma og Víkingar brosa sínu breiðasta yfir að hafa endurheimt einn sinn dáðasta son og leikmann sem ætti með réttu að vera einn sá besti í deildinni má ekki gleyma hvað er farið. Magnaður framherji og fastamaður í vörninni. Það þarf meira til.
Stjarnan

Komnir
Guðjón Orri Sigurjónsson frá Selfossi
Þorsteinn Már Ragnarsson frá Víkingi Ó.
Farnir
Ágúst Leó Björnsson í ÍBV
Ólafur Karl Finsen í Val
Ekki mikið að gerast í Garðabæ miðað við fyrri ár. Þorsteinn Már hentar ágætlega í rokk og ról-fótbolta Stjörnunnar en verður væntanlega mikið á bekknum. Guðjón Orri er illa meiddur. Létu Ólaf Karl fara þegar kannski var að kvikna á honum.
Fjölnir

Komnir
Almarr Ormarsson frá KA
Sigurpáll Melberg Pálsson frá Fram
Farnir
Fredrik Michaelsen
Ivica Dzolan, Linus Olsson og
Mees Siers
Útlendingahreinsunin er hafin eins og Ólafur Páll talaði um. Hann veit að hann þarf að endurheimta hjartað í liðinu og fékk því mikinn baráttujaxl frá KA sem spilaði vel í sumar. Nú er lykilatriðið að halda ungu strákunum sem eru sumir hverjir þeir mest spennandi í deildinni.
ÍBV

Komnir
Alfreð Már Hjaltalín frá Víkingi Ó.
Ágúst Leó Björnsson frá Stjörnunni
Dagur Austmann Hilmarsson frá Stjörnunni
Farnir
Alvaro Montejo Calleja í Þór
David Atkinson til Englands
Hafsteinn Briem
Jónas Þór Næs
Mikkel Maigaard Jakobsen
Pablo Punyed í KR
Þarf ekki að láta Kristján Guðmundsson vita að ÍBV hélt sæti sínu í deildinni og að það er Evrópa næsta sumar? Tveir ungir menn sem voru lánaðir í 2. deild síðasta sumar og Ólafsvíkingurinn sem sefur alltaf í Pepsi-deildinni. Fjórir byrjunarliðsmenn sem voru hluti af kjarna liðsins einnig farnir. Ekki gott.
GrindavíkEinkunn: C-
Komnir
Jóhann Helgi Hannesson frá Þór
Orri Freyr Hjaltalín frá Þór
Farnir
Andri Rúnar Bjarnason í Helsingborg
Einn mesti missir liðs í vetur og undanfarin ár í Pepsi-deildinni. Óli Stefán getur sannað að hann lærði fótboltafræðin í Hogwarts geri hann Jóhann Helga að öðrum eins markaskorara. Öfugur ferill Orra Freys gæti orðið skemmtileg saga en lítið meira en það.
Fylkir Einkunn: D
Komnir
Stefán Ari Björnsson frá Gróttu
Ragnar Bragi Sveinsson frá Víkingi
Farnir
(enginn)
Árbæingar virðast enn sem komið er veðja á strákana sína sem féllu en komust beint upp aftur. Fylkir hefur oft verið lúmskt öflugt á markaðnum en lítið gerist núna. Er nánast sama lið og féll fyrir ári nógu gott fyrir Pepsi 2018?
KA Einkunn: D
Komnir
Sæþór Olgeirsson frá Völsungi
Farnir
Almarr Ormarsson í Fjölni
Bjarki Þór Viðarsson í Þór
Davíð Rúnar Bjarnason í Magna
Það er ekki alltaf sem lið gerir betur, og þá töluvert betur, í leikmannalugga fyrir Inkasso-tímabil en í Pepsi. Flestir bjuggust við meiru af Akureyringum núna en þeir hafa verið ansi rólegir. Horfðu vitaskuld til Húsavíkur og horfa enn.
Keflavík Einkunn: F
Komnir
(enginn)
Farnir
Jónas Guðni Sævarsson hættur
Guðjóni Árni Antoníusson hættur
Jóhann Birnir Guðmundsson hættur
Guðlaugur Baldursson er með spennandi lið í höndunum; blöndu af ungum heimamönnum, nokkrum eldri og öflugum erlendum leikmönnum. Það dugði vel í Inkasso-deildinni en efsta deild er allt annað skrímsli. Heil kynslóð, hokin af reynslu, horfin á einu bretti. Nú þurfa menn að vakna.