Skautasvell og skógarkirkjugarður í verðlaunatillögum um Vífilsstaðahverfi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. janúar 2018 11:15 Yfirlitsmynd yfir vinningstillöguna. Mynd/Batteríið Arkitektar ehf, Efla hf og Landslag ehf
Batteríið Arkitektar ehf, Efla hf og Landslag ehf. hlutu fyrstu verðlaun í framkvæmdasamkeppni um rammaskipulag Vífilsstaðalands í Garðabæ. Svæðið sem rammaskipulagið mun ná til er um 145 hektarar að stærð og mun þar rísa nýtt hverfi, svokallað Vífilsstaðahverfi.Úrslit í samkeppninni voru tilkynnt þann 21. desember síðastliðinn en alls voru fjórar tillögur sendar inn. Á vef Garðabæjar segir að markmiðið með samkeppninni og áframhaldandi skipulagsvinnu sé að móta raunhæft rammaskipulag um uppbyggingu, sem fljótlega verði hægt að byrja að vinna eftir. Gert er ráð fyrir að deiliskipulagsferli fyrsta áfanga hverfisins geti hafist sem verður íþróttasvæði í Vetrarmýri.Garðabær festi kaup á um 200 hektara svæði í kringum Vífilsstaðaspítala í apríl á síðasta ári. Í aðalskipulagi Garðabæjar er sett fram stefnumörkun um helstu landnotkunarflokka innan svæðisins, svo sem íbúðabyggð, íþróttasvæði, golfvöll, verslun og þjónustu, en viðfangsefni samkeppninnar var að flétta saman þessa ólíku landnotkun ogsetja fram heildarlausn fyrir svæðið allt. Allar tilögurnar fjórar gera ráð fyrir byggð sem svarar til eins skólahverfis auk þess sem að gert er ráð fyrir breytingum á golfvelli GKG en í niðurstöðu dómnefndar segir að frá upphafi hafi verið ljóst að gera þyrfti breytingar á golfvellinum, færa einhverjar brautir og æfingasvæði og aðlaga að fyrirhuguðu íþróttasvæði og íbúðabyggð. Tillögurnar allar sýni þó að vel sé hægt að skapa spennandi golfvöll í tengslum við fyrirhugaða byggð að því er segir í mati dómnefndar.Vífilsstaðir eru miðpunktur í flestum tillögunum.vísir/stefánVífilsstaðir sem segull í vinningstillögunni Vinningstillagan ber yfirskriftina „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ og er þar vísað til þess að útivist í hreinu lofti og náttúrulegu umhverfi gegndi mikilvægu hlutverki í lækningaáherslum Vífilsstaðaspítala á fyrri hluta síðustu aldar. Dómnefnd segir í umsögn sinni um tillöguna að hún sé vel framsett og leysir vel þau viðfangsefni sem lögð voru fyrir í keppnislýsingu. Tillögunni takist að mynda áhugavert miðsvæði með góðar tengingar við nærliggjandi hverfi. Skipulagið undirstriki Vífilsstaði sem mikilvægan segul á svæðinu og taki fullt tillit til friðaðra bygginga og garða. Byggðin umhverfis Vífilsstaði myndi bæjarkjarna á sannfærandi hátt, um klassíska ása er liggja frá gamla spítalanum og út í náttúruna og tengi byggð í Vetrarmýri við nærsvæði Vífilsstaða, að því er segir í vinningstillögunni.Nánara sjónarhorn af íþróttasvæðinu og byggðinni. Vífillstaðir er til hægri á myndinni.Mynd/Batteríið Arkitektar ehf, Efla hf og Landslag ehfTvær tillögur deildu öðru sætinu Tillögur Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félagar ehf. og Hlínar Sverrisdóttur, landslagsarkitekts, Skipulags og hönnunar ehf og Ingu Sigurjónsdóttur arkitekts deildu með sér öðru sætinu í samkeppninni. Í fyrstnefndu tillögunni er svokallaður Þráður meginhugmynd tillögunnar. Er hann svokallaður gönguupplifunar-og gróðurás, sem tengir svæðin saman. Í mati dómnefndar segir að íþróttasvæðið sé vel útfært og skapi góðan hverfiskjarna ásamt skólanum og blandaðri byggð íbúða og þjónustu meðfram Reykjanesbraut. Fjölnotahús, íþróttahús og keppnisvöllur myndi skilvirka heild með fjölþættum möguleikum á samnýtingu bygginga og útisvæða. Þó segir einnig að ásetningur höfunda um sérstöðu Vífilsstaða komistt hvorki nægilega vel til skila með sögulegri skírskotun til byggingargerða né með rýmd gatna og rýma milli húsanna á því svæði.Gert er ráð fyrir að nokkrar brautir golfvallarsins færist yfir Vífilsstaðaveginn.Mynd/Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónssona og félagar ehf.Í síðarnefndu tillögunni er gert ráð fyrir skógarkirkjugarði með kapellu sem skapi sjónrænt kennileiti. Þá er einnig gert ráð fyrir stórri safntjörn í Vetrarmýri sem er ætlað að taka við yfirborðsvatni og nýtist sem skautasvell að vetri og segir dómnefnd að sú tillaga sé spennandi. Þó segir að í tillögunni skorti sannfærandi útfærslu á bæjarmiðju auk þess sem að höfundar leggi áherslu á að viðhalda staðarímynd Vífilsstaða og nýti því ekki land vestan spítalans vegna ásýndarinnar. Útfærsla þessarar hugmyndar styðji ekki þetta markmið samkeppninnar að mati dómnefndar og nái ekki að styrkja stöðu Vífilsstaða.Kapella á hæðinni á að vera kennileiti í hverfinu samkvæmt þessari tillögu.Mynd/Hlínar Sverrisdóttir, Skipulag og hönnunehf og Inga SigurjónsdóttirMargir kjarnar og dreifð byggð í þriðja sæti Arkitektastofan Sei hlaut þriðju verðlaun í samkeppninni. Í niðurstöðu dómnefndar segir að framsetning tillögunnar sé eintaklega aðlaðandi en í henni er gert ráð fyrir samfelldri byggð hringinn í kringum golfvöllinn; í Hnoðraholti, meðfram Reykjanesbraut, beggja megin Vífilsstaða, í Skyggnisholti og á Vífilsstaðahálsi. Margar áhugaverðar hugmyndir komi fram um einstök svæði, en í skipulaginu verði til margir kjarnar sem sé ekki sannfærandi lausn og aðalmennt sé byggð nokkuð dreifð. Þungamiðja tillögunnar er hugsuð í kringum Vífilsstaði. Tillagan gengur lengra en aðrar í nýtingu lands undir byggð og í henni er bent á að golfvöllurinn gæti mögulega einnig orðið byggingarland í framtíðinni.Gert er ráð fyrir þéttari byggð í þessari tillögu en í hinum tillögunum.Mynd/Arkitektastofan SeiHugmyndirnar nýtist við skipulagsvinnu Telur dómnefndin að í öllum tillögunum séu að finna áhugaverða þætti sem vert sé að taka til skoðunar við vinnslu rammaskipulags og deiliskipulags. Í kjölfar samkeppninnar munu vinningshafar nú móta tillögu að rammaskipulagi svæðisins í samvinnu við bæjaryfirvöld í Garðabæ. Niðurstöðu dómnefndar má sjá hér
Skipulag Tengdar fréttir Samningur um kaup Garðabæjar á jörðinni Vífilsstöðum undirritaður Kaupverðið er tæpar 560 milljónir króna. 19. apríl 2017 21:30 Mest lesið „Alla mína ævi var ég að reyna að verja hann fyrir kynþáttafordómum“ Innlent Lítið hægt að gera við kínverska vagna Strætó annað en að stöðva þá Innlent Saksóknari handtekinn við skemmtistað í sumar Innlent Skulda annarri konu fleiri milljónir vegna launamismunar Innlent Gallinn varði í átta vikur og tveir komust úr landi Innlent Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Erlent Meti kostnað og ábyrgð annarra á að greiða varnargarða Innlent Tafir vegna óhapps við Sprengisand Innlent Björgunarsveitarkona miður sín: Fékk ítrekaðar athugasemdir um húðlit Neyðarkallsins Innlent Ekki lengur gert ráð fyrir að fangaverðir starfi í brottfararstöð Innlent Fleiri fréttir Gallinn varði í átta vikur og tveir komust úr landi Saksóknari handtekinn við skemmtistað í sumar Tafir vegna óhapps við Sprengisand Meti kostnað og ábyrgð annarra á að greiða varnargarða Ný heilsugæslustöð tekin í notkun á Flúðum Lítið hægt að gera við kínverska vagna Strætó annað en að stöðva þá Skulda annarri konu fleiri milljónir vegna launamismunar „Þetta er flókið verkefni og ekki hægt að ráða við allar aðstæður“ „Set alvarlegt spurningamerki við að draga út einstaka þjóðerni fólks“ Engin eðlisbreyting þó fangavörðum sé breytt í starfsfólk Grafalvarleg staða hjá Norðuráli og frumvarp um brottfararstöð komið fram Staðgengill ríkislögreglustjóra til starfa í lagadeild HR „Alla mína ævi var ég að reyna að verja hann fyrir kynþáttafordómum“ Jafnréttisbaráttan gangi líka út á að gefa körlum tækifæri Ekki lengur gert ráð fyrir að fangaverðir starfi í brottfararstöð „Mig langar til að tala eins og Íslendingur – nákvæmlega eins og Íslendingur“ Kólnun á fasteignamarkaði: Færri skoða og lægra verð „Fullt af munum sem myndu ekki ganga kaupum og sölum á markaði“ Gagnrýnisverð hegðun Starfsmenn meðferðarheimilis: Fíkniefni, öryggisbrestir og óvirkt eftirlit Ugla Stefanía nýr sérfræðingur Reykjavíkurborgar Upplausn á meðferðarheimili og fleiri fölsuð lyf Björgunarsveitarkona miður sín: Fékk ítrekaðar athugasemdir um húðlit Neyðarkallsins Setja milljarða í raforkumál á Norðausturlandi Fjársvikamálið komið til Héraðssaksóknara Hrein mannvonska að námsmenn séu blórabögglar útlendingaóþols ESA segir Ísland þurfa að herða sig í loftslagsmarkmiðum sínum Stutt stopp Orbans á Íslandi Grunaður barnaníðingur komi ekki lengur nálægt BHM Skrifin séu ekki til komin vegna framboðs í borginni Sjá meira
Samningur um kaup Garðabæjar á jörðinni Vífilsstöðum undirritaður Kaupverðið er tæpar 560 milljónir króna. 19. apríl 2017 21:30