Íþróttadeild spáir Víkingi 10. sæti deildarinnar og þar með harðri fallbaráttu en á þeim slóðum hefur liðið verið undanfarin þrjú sumur eftir að ná óvænt í Evrópusæti árið 2014. Víkingsliðið stefndi niður um deild á síðasta ári fyrir þjálfarabreytinguna en nú gæti hæglega farið svo að Víkingar kveðji Pepsi-deildina á ný. Þeir sleppa þó rétt svo ef spá íþróttadeildar gengur upp.
Víkingar eiga 110 ára afmæli í ár en gengið hefur upp og ofan á afmælisárum. Félagið var stórhuga á 100 ára afmæli sínu fyrir tíu árum sem það fagnaði í B-deildinni. Þá tókst ekki að komast upp og var í raun mikið vonbrigða sumar. Best gekk af afmælisári áður en sjónvarpið var tekið í gagnið en 2. sætið náðist á 30 og 40 ára afmælunum fyrir langa löngu.
Þjálfari Víkings er Logi Ólafsson sem tók við þegar að Milo Milojevic stakk af í Kópavoginn snemma sumars. Reynsluboltinn Logi, sem gerði Víking síðast að Íslandsmeisturum árið 1991, gerði stórgott mót og bjargaði Víkingum frá falli. Logi er þrautreyndur og agaður þjálfari af gamla skólanum sem hefur komið að því að búa til nokkur sigursæl lið og þekkir bransann inn og út.
Svona munum við eftir Víkingi
Hann er farinn í FH og því verða Víkingar að finna enn einn markaskorarann en á síðustu tímabilum hafa þeir gert vel í að fá en þurft svo að horfa á eftir framherjum á borð við Óttar Magnús Karlsson, Gary Martin og nú Castillion.
Liðið og leikmenn

Þrír sem Víkingar treysta á:
Sölvi Geir Ottesen: Víkingar fengu einn af landsliðsmönnum sínum í gegnum tíðina heim úr atvinnumennsku í vetur. Sölvi Geir yfirgaf Víking og hélt út sumarið 2004 og hefur spilað í Svíþjóð, Danmörku, Rússlandi, Kína og Taílandi á glæstum atvinnumannaferli. Sölvi hefur hæfileikana í að vera hreinlega einn besti leikmaður deildarinnar og hann þarf að vera upp á sitt allra besta ef liðið ætlar sér að ná einhverjum árangri.
Alex Freyr Hilmarsson: Miðjumaðurinn öflugi hefur ekki bara verið besti leikmaður Víkings undanfarin misseri heldur einn besti leikmaður deildarinnar. Hann er allt í öllu í sóknarleik liðsins og mikils metinn hjá liðsfélögum sínum. Hann er ekki bara góður á boltann með mikla yfirsýn og leggur upp og skorar heldur er hann einnig mjög duglegur og vinnur fyrir liðið.
Rick Ten Voorde: Algjörlega óskrifað blað en samt sem áður maður sem Víkingar verða að treysta á. Hollendingurinn hefur verið slakari en Castillion var á síðasta undirbúningstímabili en Castillion datt í gang strax í fyrsta leik í Pepsi-deildinni og það þarf Ten Voorde að gera líka.
Markaðurinn

Gunnlaugur Hlynur var ekkert sérstakur í döpru liði Ólafsvíkinga á síðustu leiktíð og verður væntanlega bekkjarmatur í sumar þrátt fyrir að byrja nánast alla leikina á undirbúningstímabilinu. Þá á Atli Hrafn Andrason einnig eftir að sanna sig í meistaraflokksbolta.
Fyrir utan missinn á leikmönnum í tvö af bestu liðum deildarinnar er Róbert Örn Óskarsson mögulega hættur í fótbolta en hann verður allavega ekkert með Víkingum í sumar.
Markaðseinkunn: C+
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Logi kom inn með ferska vinda í fyrra en það fjaraði aðeins udnan því þegar að það leið á tímabilið hjá þeim.“
„Þeir voru nokkuð vel mannaðir en mér finnst hoggin full stór skörð í þeirra lið núna. Markvarðamálin eru upp í loft sem og varnarlínan og þá hefur Víkingum gengið illa að halda hreinu í vetur. Mér finnst of mikið af spurningamerkjum í kringum þetta lið til að spá því einhverju öðru en að daðra við neðri hlutann,“ segir Reynir Leósson.
Spurt og svarað

Spurningamerkin eru ... markvarðamálin sérstaklega. Trausti Sigurbjörnsson spilaði nær allt undirbúningstímabilið en Senegali mun byrja mótið og hann verður svo mögulega leystur af eftir nokkra leiki með Dana sem fór með Víkingum í æfingaferð. Þetta er svakalega mikið rót á mikilvægri stöðu. Helst Sölvi Geir heill í 22 leiki en hann hefur lengi glímt við erfið bakmeiðsli. Hvað gerir svo nýi hollenski framherjinn?
Binni bjartsýni og Siggi svartsýni
Róbert Örn var ekkert frábær í fyrra í markinu eftir stórkostlegt ár þar á undan. Senegalinn er allur að koma til og er geggjaður spyrnumaður. Breiddin er fín og svo erum við með kandídat í besta unga leikmann deildarinnar í Loga Tómassyni. Að spá okkur falli þrátt fyrir brösótt gengi í vetur er í besta falli grín.
Siggi: Hefurðu séð Ten Voorde í vetur, Binni? Hann getur varla keypt sér færi, hvað þá mark. Hann er svona átta sinnum slakari en Castillion. Svo er slakur Róbert betri en þessi Mbaye í markinu. Þessi markvarðamál valda mér miklu hugarangri. Ofan á allt er Dofri Snorrason svo illa meiddur og verður kannski ekkert með í sumar. Það er einn allra mikilvægasti maður liðsins.
Úrslitin í vetur hafa ekki verið slæm. Það hafa verið skelfileg. Tap fyrir tveimur Inkasso-liðum, þar á meðal Fram áður en erlendu leikmennirnir komu og svo labbaði Valur yfir okkur þrátt fyrir að vera manni færri. Þú ert alveg farinn í bjartsýninni en ég segi bara eins og Óli Þórðar: Við höfum ekki gert rassgat síðan að hann fór sama hversu vel liðið er mannað og miðað við veturinn erum ekki að fara að gera rassgat í sumar.