Real með annan fótinn í úrslit eftir sigur í Þýskalandi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. apríl 2018 20:45 Leikmenn Real fagna á Allianz Arena í kvöld. vísir/getty Real Madrid er í kjörstöðu eftir fyrri leikinn gegn Bayern Munchen í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikið var í Þýskalandi og hafði Real betur, 2-1. Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik á meðan gestirnir voru þéttir. Fyrsta markið kom þó í fyrri hálfleik, á 28. mínútu, er bakvörðurinn Joshua Kimmich kom Bayern yfir. Hann skoraði þá eftir mistök Keylor Navas í marki Real en hann átti að gera betur. Sextán mínútum síðar jafnaði Marcelo metin eftir fyrirgjöf frá hægri en hann skoraði með þrumufleyg. Staðan 1-1. Sigurmarkið kom svo á 57. mínútu. Rafinha tapaði boltanum skelfilega og Real geystist upp. Lucas Vasquez lagði boltann á Marco Asensio sem kláraði færið vel. Fleiri urðu mörkin ekki á Allianz Arena og það er ljóst að Real er komið með annan fótinn í úrslitaleikinn. Tvö útivallarmörk og síðari leikurinn á hinum feyknasterka heimavelli þeirra, Santiago Bernabeu. Meistaradeild Evrópu