Ramos í ruglinu á sínum gamla heimavelli Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. maí 2018 21:15 vísir/getty Real Madrid heimsótti Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og átti möguleika á að koma sér upp í 2.sæti deildarinnar með sigri. Heimamenn byrjuðu leikinn hins vegar betur og voru tveimur mörkum yfir í leikhléi eftir mörk frá Wissam Ben Yedder og Miguel Layun. Síðari hálfleikurinn var aldeilis viðburðarríkur og þá sérstaklega hjá Sergio Ramos. Hann klúðraði vítaspyrnu á 58.mínútu og skoraði svo sjálfsmark á 84.mínútu. Staðan þá orðin 3-0 fyrir Sevilla. Borja Mayoral minnkaði muninn skömmu síðar og í uppbótartíma var aftur dæmd vítaspyrna til Real Madrid. Ramos fór aftur á vítapunktinn og skoraði en nær komust Madridingar ekki. Lokatölur 3-2. Spænski boltinn