Svíar unnu Suður-Kóreumenn á VAR-víti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2018 13:45 Andreas Granqvist fagnar sigurmarki sínu. Vísir/Getty Svíar hafa ekki byrjað betur á HM í 60 ár eftir að liðið vann 1-0 sigur á Suður Kóreu í fyrsta leik sínum á HM í fótbolta í Rússlandi í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan að HM fór fram í Svíþjóð 1958 þar sem sænska landsliðið vinnur sinn fyrsta leik á heimsmeistaramóti. Sigurmark Svía kom úr vítaspyrnu á 65. mínútu leiksins. Það skoraði fyrirliði Svía, Andreas Granqvist, af miklu öryggi. Joel Aguilar, dómari leiksins, dæmdi ekki víti í fyrstu þegar Kim Min-Woo felldi Viktor Claesson klaufalega en fékk síðan skilaboð frá myndbandadómurum. Aguilar skoðaði atvikið og dæmdi svo víti. Þetta var þriðja VAR-vítið á þessu heimsmeistaramóti en alls gafa verið dæmdar sjö vítaspyrnur í fyrstu tólf leikjuunum. Svíarnir voru búnir að vera miklu betri þegar kom að vítaspyrnudómnum en voru búnir að fara illa með nokkur góð færi á fyrsta klukkutímanum og þá sérstaklega Marcus Berg. Kóreumenn byrjuðu leikinn af miklum krafti en þeir komust lítið áleiðis gegn sterkri vörn Svía og sænska liðið tók síðan öll völd á leiknum. Eftir að Svíar komust yfir þá spiluðu þeir af skynsemi og tóku ekki mikla áhættu í sinum leik. Kóreumenn reyndu að pressa á lokamínútunum en sköpuðu sér lítið sem ekkert þar til í uppbótartíma. Hwang Hee-Chan á átti þá skalla úr miðjum teignum en hitti ekki markið. Það var það næsta sem lið Suður Kóreu komst því að skora og sigur Svía var aldrei í mikilli hættu. Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur ekki síst eftir að Mexíkó vann Þýskaland í hinum leik riðilsins. Svíar eru því á toppi riðilsins með Mexíkó.1 - This was Sweden’s first win in their opening match at the World Cup since 1958 when they beat Mexico 3-0 as tournament hosts - they had drawn five and lost two of their previous seven. Ignited. #SWEKOR#WorldCup#SWE#KORpic.twitter.com/ywNBNVf1QD — OptaJoe (@OptaJoe) June 18, 2018 HM 2018 í Rússlandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti