Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið hvernig HM-peningarnir skiptast á milli aðildarfélaga sinna en KSÍ greiðir alls 200 milljónir króna til aðildarfélaga KSÍ vegna HM í Rússlandi.
Íslenska sambandið fékk mikinn pening vegna árangurs íslenska karlalandsliðsins sem vann sér sæti á heimsmeistaramótinu í fyrsta sinn í sögunni.
Fjármunum sem veitt er til aðildarfélaga skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna en upphæðin var ákveðin á síðasta ársþingi KSÍ sem fram fór 10. febrúar síðastliðinn. Stjórn KSÍ hefur nú ákveðið hvernig greiðslurnar skiptast á milli aðildarfélaga og segir frá skiptingunni á heimasíðu sinni.
Framlag til aðildarfélaga byggist fyrst og fremst á stöðu meistaraflokks karla og kvenna í deildum síðastliðin tvö ár eða árin 2017 og 2018. Við úthlutun eftir EM 2016 var miðað við árin 2014 til 2016.
Félögunum er skipt upp í tvo flokka. Annars vegar félög í deildarkeppni, sem eru með unglingastarf og hins vegar félög sem ekki standa fyrir barna- og unglingastarfi.
Félögin með unglingastarf, sem eru alls 47, fá liðlega 198,5 milljónir króna sem skiptast eftir gefnum stigum sem miðast við stöðu í deildum á áðurnefndu tímabili. Félögum án unglingastarfs, sem eru 30, er úthlutað alls tæplega 1,7 milljónum króna. Aðferðafræðin er því sambærileg því sem viðhöfð var árið 2016.
Sjö félög fá hæstu upphæðina eða 7.586.191 milljónir. Þau eru Breiðablik, FH, ÍBV, KR, Stjarnan, Valur og Grindavík.
„Þeir fjármunir sem nú skila sér til knattspyrnufélaga á Íslandi skipta aðildarfélögin verulegu máli. Stjórn KSÍ væntir þess að þeim verði ráðstafað til verkefna sem skili bættu starfi til lengri tíma,“ segir meðal annars í frétt á heimasíðu KSÍ en skiptingin til félaganna er annars eftirfarandi.
HM framlag til aðildarfélaga KSÍ:
Breiðablik | 7.586.191
FH | 7.586.191
ÍBV | 7.586.191
KR | 7.586.191
Stjarnan | 7.586.191
Valur | 7.586.191
Grindavík | 7.586.191
Fylkir | 6.729.095
Selfoss | 6.319.874
ÍA | 6.319.874
Haukar | 6.319.874
Keflavík | 6.319.874
KA | 6.319.847
Fjölnir | 6.319.874
Víkingur R. | 6.115.264
Þróttur R. | 5.910.653
ÍR | 5.910.653
Þór Akureyri | 5.501.432
Víkingur Ólafsvík | 5.501.432
HK | 5.296.821
Fram | 4.887.600
Leiknir R. | 4.273.769
Grótta | 3.682.990
Magni | 3.864.548
Njarðvík | 3.864.548
Sindri | 3.682.990
Tindastóll | 3.682.990
Völsungur | 3.273.769
Leiknir F. | 3.134.634
Afturelding | 3.069.158
Höttur | 2.725.412
Fjarðarbyggð | 2.725.412
Huginn | 2.455.327
Vestri | 2.455.327
Einherji | 2.455.327
Víðir | 2.455.327
Þróttur V. | 2.046.105
KF | 1.636.884
Dalvík/Reynir | 1.636.884
Álftanes | 1.636.884
Ægir | 1.636.884
Reynir S. | 1.227.663
KFR | 818.442
Snæfell/UDN | 818.442
Skallagrímur | 818.442
Kormákur/Hvöt | 818.442
Hamar | 818.442
Félög án barna- og unglingastarfs, 30 félög, fá samtals 1,7 milljónir króna, eða 56.000.- hvert félag.
