Fjórtán frábær ár með Messi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. október 2018 17:00 Ungur Messi fagnar í leik með Barcelona. vísir/getty
Það munu eflaust einhverjir stuðningsmenn Barcelona skála í kvöld fyrir því að í dag eru fjórtán ár síðan Lionel Messi spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið. Fyrsti leikurinn var gegn nágrannaliðinu Espanyol. Hann kom af bekknum á 82. mínútu og var þá 17 ára, þriggja mánaða og 22 daga gamall. Þá var hann sá yngsti til þess að spila fyrir félagið. Síðustu fjórtán ár eru lyginni líkust og árangur félagsins, sem og leikmannsins, á þessum árum ótrúleg. Messi er búinn að spila 647 leiki fyrir félagið og skora í þeim leikjum 562 mörk. Það er auðvitað fáranleg tölfræði. Argentínumaðurinn hefur fimm sinnum verið valinn besti knattspyrnumaður heims og fimm sinnum hefur hann verið sá markahæsti í Evrópu.Leo #Messi made his official first team debut! The rest is history. Enjoy his best moments as a Barça player on @Dugout https://t.co/pJOCYB1zqYpic.twitter.com/wg3GkeeyjB — FC Barcelona (@FCBarcelona) October 16, 2018 Spænsku deildina hefur Messi unnið níu sinnum með Katalóníu-félaginu og Meistaradeildina fjórum sinnum. Spænski bikarinn hefur sex sinnum komið í hús með Messi í liðinu. Á þessum fjórtán árum er Barcelona líka búið að vinna HM félagsliða þrisvar sinnum og Ofurbikar UEFA einnig í þrígang. Þokkaleg uppskera hjá 170 sentimetra strák frá Rosario í Argentínu.
Spænski boltinn Mest lesið Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Fótbolti Fleiri fréttir Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Mikael Egill og félögum tókst ekki að stoppa toppliðið Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Sjá meira