

Að velja stríð
Eftir fordæmalaust góðæri síðustu ára, þar sem kaupmáttur jókst um meira en fjórðung frá 2014, er þetta sá efnahagslegi veruleiki sem við blasir. Hratt versnandi gengi flugfélaganna, mikilvægustu fyrirtækja ferðaþjónustunnar sem er orðin burðarás hagkerfisins, er um margt birtingarmynd þverrandi samkeppnishæfni Íslands. Gríðarmiklar nafnlaunahækkanir og hátt raungengi krónunnar hefur valdið því að launakostnaður fyrirtækja hefur hækkað margfalt meira en þekkist í nágrannaríkjum okkar. Sökum þessa hefur Seðlabankinn bent á að „samningsstaða launafólks kann því að hafa veikst á sama tíma og svigrúm fyrirtækja til að taka á sig launahækkanir hefur minnkað“. Með öðum orðum þá er minna til skiptanna nú þegar gengið er til kjarasamninga á vinnumarkaði en oft áður. Þetta vita auðvitað flestir.
Ný forysta verkalýðshreyfingarinnar skeytir hins vegar lítið um þær staðreyndir sem aðrar. Sjaldan hefur það komið eins skýrt í ljós og þegar fulltrúar ASÍ, VR og Eflingar mættu í fréttaskýringarþáttinn Kveik í vikunni þar sem þeir boðuðu, svo fátt eitt sé nefnt, stríð – stéttastríð, réttara sagt – og áform um að ásælast lögbundinn lífeyrissparnað landsmanna til að nota sem vopn í verkfallsbaráttu sem er drifin áfram af marxisma og lýðskrumi. Formaður VR, sem setur það ekki fyrir sig að brjóta reglur um óhæði stjórnarmanna, vill í því skyni að verkalýðshreyfingin þrýsti á fulltrúa sína í stjórnum lífeyrissjóðanna til að „skrúfa“ fyrir fjárfestingar sjóðanna. FME sá í kjölfarið ástæðu til að vekja athygli á því að þær hugmyndir samræmdust ekki lögum um lífeyrissjóði. Þá eru að mati formanns Eflingar hér „efnahagslegir forréttindahópar“ sem borga ekki eðlilega til samneyslunnar enda þótt staðreyndin sé sú að tvær efstu tekjutíundirnar standa undir um 60 prósentum af allri skattbyrði einstaklinga og þá er hlutur þeirra tíu prósent tekjuhæstu af heildarráðstöfunartekjum nokkuð lægri en á hinum Norðurlöndunum.
Slíkar hagtölur eru hins vegar einfaldlega afgreiddar sem blekkingar. Allt er þetta með miklum ólíkindum og boðar ekki gott í þeim kjaraviðræðum sem nú eru hafnar. Leiðtogar stéttarfélaganna virðast ekki endilega hafa það markmið að leiðarljósi að ná fram kjarasamningum, sem myndu tryggja launafólki raunverulegar kjarabætur, heldur fremur að sækjast eftir átökum og verkföllum í einhverjum óskilgreindum pólitískum tilgangi. Ef það er rétt sem verkalýðshreyfingin heldur fram, að hún eigi í stríði, þá er að minnsta kosti ljóst hverjir hafa kosið að vera hinir efnahagslegu hryðjuverkamenn í því stríði.
Skoðun

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar

Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi
Ingvar Stefánsson skrifar

Raddir fanga
Helgi Gunnlaugsson skrifar

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar