Tryggingastofnun hefur sent félagsmálaráðuneytinu aðgerðaáætlun vegna endurskoðunar á búsetuútreikningi örorkulífeyrisþega. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Tryggingastofnunar. Enn fremur segir í tilkynningunni að þegar fjárheimildir liggi fyrir sé ekkert því að vanbúnaði að hefjast handa.
Í byrjun árs staðfesti félagsmálaráðuneytið að Tryggingastofnun ríkisins, TR, hefði hlunnfarið stóran hóp öryrkja um milljarða króna á undanförnum árum.
Í bréfi ráðuneytisins til velferðarnefndar Alþingis var staðfest að sú lagaframkvæmd TR að skerða örorkubætur einstaklinga á grundvelli búsetu stæðist ekki lög.
Búsetuskerðing er þegar fólk sem búið hefur tímabundið erlendis fær skertar örorkubætur vegna búsetu þeirra í öðru landi, en gert er ráð fyrir að það fái einnig bætur þaðan.
Lögmaður Öryrkjabandalagsins, Daníel Isebarn var til viðtals í kvöldfréttum Stöðvar 2 4. Janúar síðastliðinn. Daníel sagði málið afar alvarlegt, sérstaklega í ljósi þess að bandalagið væri búið að benda TR á stöðuna í áratug.
Eins og fyrr sagði hefur TR nú sent Félagsmálaráðuneytinu aðgerðaáætlun sína og verður breytt framkvæmd kynnt síðar.
Aðgerðaráætlun TR vegna búsetuútreikninga komin til félagsmálaráðuneytisins

Tengdar fréttir

Staðfest að Tryggingastofnun hafi hlunnfarið öryrkja um milljarða undanfarin ár
Lögmaður Öryrkjabandalagsins segir að bandalagið hafi bent stofnuninni margoft á skerðinguna.

Orðið af háum fjárhæðum vegna ólögmætrar skerðingar
Lögblind kona hefur orðið af háum fjárhæðum vegna ólögmætrar búsetuskerðingar sem hún hefur mátt þola undanfarin ár.