Skoðun

Ódýr matur – dýrkeypt blekking

Ólafur Dýrmundsson skrifar
Vart er um það deilt að matur sé mannsins megin. Víða er þó skortur á þessum lífsnauðsynjum og 11% jarðarbúa þjást af viðvarandi hungri samkvæmt upplýsingum FAO. Fæðuöryggi stafar ógn af loftslagsbreytingum um allan heim.

Hér á landi er lítið rætt um fæðuöryggi, þótt það fari minnkandi, einkum vegna vaxandi tengsla við markaðskerfi Evrópusambandsins. Séð er fyrir nægu framboði matvæla með því að flytja inn um helming þeirra. Aftur á móti er verð á mat stöðugt umræðuefni, hann skal vera sem ódýrastur og er þá ekki alltaf hugað sem skyldi að uppruna, framleiðsluaðferðum, gæðum, matvælaöryggi og lýðheilsu.

Samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar nemur kostnaður við mat- og drykkjarvörur liðlega 13% af neysluútgjöldum heimilanna, að meðaltali, og er maturinn ekki hálfdrættingur samanborið við stærsta liðinn, húsnæðiskostnað. Samt eru stjórnvöld enn að leggja drög að aðgerðum til að veikja landbúnaðinn, og þar með starfsskilyrði bænda til að framleiða holl, hrein og örugg matvæli, með því að auka innflutning. Þar er einblínt á verðið eitt sér, markaðssjónarmið eiga að ráða ferðinni.

Þeim upplýsingum er nú dreift í frumvarpsdrögum að breytingum á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, að aukinn innflutningur matvæla muni skila neytendum 900 milljónum á móti 500-600 miljóna króna tekjuskerðingu íslensks landbúnaðar, á ári. Í tengslum við þetta mat eru mótsagnirnar augljósar og neikvæð áhrif vanmetin því að við aukinn innflutning mun kolefnisfótsporið stækka og sjálfbærnin minnka. Þá er hæpið að allar tollalækkanir skili sér til neytenda. Það er m.a. heldur ekki traustvekjandi að síðan Landbúnaðarháskóli Íslands var stofnaður 2005 hefur stöðugildum búvísindamanna þar fækkað úr rúmlega 20 í 5.

Að mínum dómi er ódýr matur, afurð verksmiðjubúskapar á kostnað umhverfis, velferðar búfjár og kjara bænda, dýrkeypt blekking. Er ekki tími til að skoða þessi mál betur?




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×