Skoðun

Sköpum störf

Sirrí Hallgrímsdóttir skrifar
Allt í kringum okkur sjáum við öflug og rótgróin fyrirtæki með fjölda fólks í vinnu, þau eru hluti af daglega lífinu okkar. Við erum sennilega langflest sek um að hugsa ekki út í þá staðreynd að eitt sinn voru öll þessi fyrirtæki hugmynd. Hugmyndin var í kollinum á frumkvöðli og ekki er ólíklegt að hún hafi þótt ævintýraleg, djörf og jafnvel hálfgalin. En það var einhver sem ákvað að stíga skrefið, ráðast í málið og hrinda því af stað. Það var einhver sem var tilbúinn að taka áhættuna, leggja sparnaðinn sinn og annarra undir til þess að láta hugmynd verða að veruleika.

Við sjáum ekki allar hugmyndirnar sem gengu ekki upp, fyrirtækin sem lifðu ekki af vegna þess að hugmyndin var röng, tíminn var rangur eða frumkvöðullinn var óheppinn. Ótrúlega margt getur farið úrskeiðis í frumkvöðlastarfinu og það er í raun ótrúlegt að einhverjir séu tilbúnir til að taka áhættuna og reyna að skapa eitthvað nýtt.

Við eigum því að vera mjög þakklát fyrir þá einstaklinga sem eru tilbúnir að taka áhættuna og leggja á sig það þrotlausa erfiði sem felst í því að gera hugmynd að veruleika. Við eigum því að fagna með þeim þegar vel gengur og virða það starf sem leitt hefur til árangurs. En það er líka mikilvægt að styðja við þá í mótlæti, sýna því skilning að ekki eru allar ferðir til fjár og hlutirnir geta farið úrskeiðis. Það geta nefnilega ekki allir unnið hjá ríkinu og störfin skapa sig ekki sjálf, við þurfum frumkvöðla og þá sem flesta.




Skoðun

Sjá meira


×