Langt síðan að Fylkir og ÍA byrjuðu svona vel og þá brostu menn um haustið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2019 16:30 Haraldur Ingólfsson (annar frá hægri) fer fyrir fögnuði Skagamanna þegar Íslandsmeistarabikarninn var tryggður sumarið 1996. Vísir/BG
Lið Fylkismanna og Skagamanna sitja í tveimur efstu sætunum eftir fyrstu umferð Pepsi Max deildar karla sem lauk um helgina. Bæði liðin unnu þá flotta sigra, Fylkir vann 3-0 sigur á ÍBV í Eyjum en ÍA vann 3-1 heimasigur á KA. Þetta er stærsti sigur Fylkismanna í fyrstu umferð í efstu deild síðan í maí 2002 þegar liðið vann 3-0 útisigur á FH-ingum í fyrsta leik. Fylkir varð bikarmeistari um haustið og endaði í öðru sæti í deildinni. Það er besta tímabil félagsins frá upphafi en árið á undan varð liðið líka bikarmeistari en endaði um miðja deild. Skagamenn hafa ekki byrjað sumarið á tveggja marka sigri í efstu deild síðan í maímánuði 1996 þegar liðið vann 3-1 sigur á Stjörnunni. Hinn sautján ára gamli Bjarni Guðjónsson skoraði þá tvívegis áður en Haraldur Ingólfsson innsiglaði sigurinn. Skagamenn urðu síðan tvöfaldir meistarar haustið 1996. Tryggvi Hrafn Haraldsson, sonur Haraldar, skoraði tvö af mörkum Skagamanna um helgina. Það seinna skoraði hann beint úr aukaspyrnu en faðir hans skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrstu umferðinni tvö ár í röð fyrir að verða þrjátíu árum eða sumrin 1992 og 1993.ÍA-liðið var enn fremur aðeins að vinna sinn þriðja sigur í fyrstu umferð á síðustu fjórtán tímabilum félagsins í efstu deild. Skagamenn unnu einnig sinn fyrsta leik sumrin 2012 (1-0 á Breiðabliki) og 2005 (1-0 sigur á Þrótti). Síðustu fjögur tímabil á undan þessu höfðu Skagamenn aftur mótið byrjað Íslandsmótið á tapi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Handbolti Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira