Samninganefndir iðnaðarmanna og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu í nótt nýjan kjarasamning í húsnæði ríkissáttasemjara. Greint er frá á vef Ríkisútvarpsins.
Þegar Vísir náði tali af Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, formanni Rafiðnaðarsambands Íslands og talsmanni samflots iðnaðarmanna í kjaradeilunni, í gærkvöldi sagði hann að góður gangur væri á vinnu við nýja kjarasamninga eftir maraþonfundi síðustu daga.
Þeir voru loks undirritaðir í nótt en samið var fyrir hönd Rafiðnaðarsambands Íslands, Samiðnar, Matvís, VM- Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Grafíu, Byggiðnar og FHS; félags hársnyrtisveina.
Kristján sagði í samtali við RÚV í nótt að samningurinn væri svipaður og samningar á almenna vinnumarkaðnum en áhersla hafi verið lögð á hækkun lægstu taxta, styttingu vinnuvikunnar og að færa taxta nær greiddum launum.
Þá nemi hækkun taxta á samningstímanum 90 þúsund krónum en almenn hækkun verði 68 þúsund krónur. Ná eigi vinnutímanum niður í 36 stundir á viku. Samningarnir gilda til 1. nóvember 2022.
