Kjörstjórn samþykkir ekki framboð Heiðveigar Maríu Jakob Bjarnar skrifar 14. júní 2019 12:57 Heiðveig María reynir að tala um fyrir kjörstjórninni en án árangurs. Hún efast um hæfi Guðmundar Hallvarðssonar og Jónasar Þórs Jónassonar. visir/vilhelm
Hinum svokallaða B-lista sem vildi bjóða fram til stjórnarnar í Sjómannafélagi Íslands barst í gær úrskurður kjörstjórnar félagsins um lögmæti þess. Kjörstjórn telur framboðið ekki uppfylla skilyrði. Þetta þýðir þá að A-listi sem Bergur Þorkelsson, gjaldkeri félagsins, fer fyrir telst sjálfkjörinn. Aftur. Væringar innan Sjómannafélags Íslands eiga sér orðið býsna langa sögu, með ótal vendingum en eftir niðurstöðu Félagsdóms féllst stjórn á að endurtaka kosningar en Bergur var sjálfkjörinn formaður á síðasta aðalfundi en þá hafði B-listi verið úrskurður ómarktækur og Heiðveig María var rekin úr félaginu. Jónas gaf út harðorða yfirlýsingu, fordæmdi fréttaflutning og tilkynnti að hann gæfi ekki kost á sér aftur til formennsku.Segir Jónas og Guðmund vanhæfa Heiðveig María telur þetta fráleita niðurstöðu sem byggi á huglægu mati kjörnefndar. Auk þess sem hún leyfir sér að efast um hæfi tveggja af þeim þremur sem í kjörnefnd sitja.Heiðveig María segir það skjóta skökku við að Guðmundur Hallvarðsson, sem er á A-lista, dæmi jafnframt um lögmæti framboðs B-lista. Hún efast um hæfi hans.Fbl/Heiða„Guðmundur Hallvarðsson er á A-lista og situr í kjörstjórn sem tekur afstöðu til málsins?! Hann er fyrrverandi formaður félagsins og situr á A-lista í trúnaðarmannaráði.“ Heiðveig María segir að sér sé ekki kunnugt um að hann sé í neinni tiltekinni starfsgrein, sem þó er úrslitaatriði í niðurstöðu kjörstjórnar.„Nema ellilífeyrisþegar teljist sérstök stétt?“ Hún vill meina að samkvæmt eigin röksemdafærslu ætti þá listi A að vera ólöglegur. Þá bendir hún jafnframt á að formaður kjörstjórnar sé Jónas Þór Jónasson lögmaður, en hann var verjandi SÍ í máli Heiðveigar gegn félaginu. En dómur Félagsdóms var henni í vil og var SÍ dæmt í stjórnvaldssektir vegna þess hvernig staðið var að brottrekstri hennar úr félaginu. Það hljóti að hafa áhrif á hæfi hans einnig. B-listafólk ekki orðið við tilmælum kjörstjórnar Í niðurstöðu kjörstjórnar um lögmæti framboðs Heiðveigar Maríu kemur fram að þeim sem að framboðinu standa hafi verið veitt svigrúm til að lagfæra meinbugi sem kjörstjórn taldi vera á listanum og safna undirskriftum á nýjan leik.Bergur Þorkelsson telst því enn og aftur sjálfkjörinn formaður SÍ.visir/vilhelm„Þar sem B-listi er að mati kjörstjórnar samkvæmt framansögðu ekki til samræmis við afdráttarlaus fyrirmæli 16. gr. laga félagsins um skipan í trúnaðarmannaráð félagsins og hefur ekki viljað bæta úr annmörkum sem á listanum eru, hefur kjörstjórn enga aðra úrkosti en að líta svo á að um ólögmætt framboð sé að ræða. Af framangreindu leiðir, að aðeins einn lögmætur listi, A-listi stjórnar félagsins, hefur borist til stjórnar, trúnaðarmannaráðs og matsveinadeildar, sbr. c-liður 5. mgr. 16. gr. laga félagsins, og úrskurðar kjörstjórn því að þeir félagsmenn sem þar eru tilnefndir teljast vera sjálfkjörnir í stjórn félagsins, stjórn matsveinadeildar og trúnaðarmannaráð, til samræmis við önnur ákvæði laga félagsins.“ Heiðveig telur aðspurð ekki fráleitt að ætla að þarna hafi myndast eigendafélag sem gerir hvað sem er til að hleypa engum utanaðkomandi að málum. „Við óskuðum eftir fundi með kjörstjórn eftir að við fengum þetta í andlitið, en því var hafnað. Þeir telja sig hafa lokið störfum.“Lögsókn eða úrsögn úr félaginu til athugunar Heiðveig segir að huglægt mat þeirra í kjörstjórn hljóti að liggja til grundvallar þessari niðurstöðu, sem lúti að túlkun þeirra á óljósum lögum um að allar starfsgreinar eigi að vera á lista. Það komi hvorki fram í leiðbeiningum né lögum félagsins með skýrum hætti. Jónas Garðarsson, fráfarandi formaður Sjómannafélags Íslands, sem eldað hefur grátt silfur við Heiðveigu Maríu, mætir í Félagsdóm í máli hennar á hendur félaginu.visir/vilhelm„Þetta er túlkunaratriði kjörstjórnar, sem við erum ósammála. Höfum lagt fram rök.“ Heiðveig segir að hún og félagar hennar séu nú að skoða hvað taki við. Hvort stjórn félagsins verði stefnt enn á ný og þá hvort það eigi fremur erindi til Félagsdóms eða almennra dómstóla. Þá kemur einnig til greina að hópurinn segi sig úr félaginu. Hversu stór hópur það yrði liggur ekki fyrir en víst er að það yrði blóðtaka fyrir félagið, að missa þau félagsgjöld. „Það er bara verið að meta stöðuna.Við viljum standa vörð um lýðræði og réttlæti. Við erum að berjast fyrir því að fá að bjóða fram, fjandinn hafi það. Heiðveig María og lögmaður hennar, Kolbrún Garðarsdóttir. SÍ var dæmt til að greiða í ríkissjóoð 1,5 milljónir króna vegna þess hvernig staðið var að brottrekstri Heiðveigar úr félaginu.visir/vilhelmVið erum eingöngu að bjóða fram til að gefa öllum félagsmönnum kost á að kjósa og þeirri niðurstöðu munum við una. En það er alltaf girt fyrir að við getum boðið fram.“Eru með farmann á listanum en það dugi ekki til Heiðveig segir alla sammála um að lögin séu óskýr. Og þegar túlkunaratriði eru vafasöm, þá beri að túlka það framboðinu og lýðræðinu í hag. „Þeir segja framboðið ólögmætt vegna þess að enginn á listanum sé starfandi samkvæmt kjarasamningi Eimskipa og Samskipa?! Hvernig í veröldinni áttum við að vita að það ætti að stilla þessu þannig upp? Við erum með farmann á listanum, en hann starfar bara ekki samkvæmt þeim kjarasamningum sem eru í gildi hjá Eimskip og Samskip. Starfar samkvæmt kjarasamningi farmanna. Þetta heldur engu vatni.“ Vísir reyndi ítrekað að ná tali af Jónasi Þór og Guðmundi Hallvarðssyni, vegna efasemda Heiðveigar um hæfi þeirra en án árangurs.
Dómsmál Kjaramál Ólga innan Sjómannafélags Íslands Tengdar fréttir Félagar í Sjómannafélaginu krefjast nýrra kosninga Stjórn Sjómannafélags Íslands vill nú ná sáttum við Heiðveigu Maríu. 6. mars 2019 15:53 Dómur Heiðveigu í vil kom Bergi „verulega á óvart“ Stjórn Sjómannafélags Íslands fundar á morgun vegna málsins. 26. febrúar 2019 21:03 Heiðveig María segir ljóst að Sjómannafélagið ætli ekki í kosningar Enn og aftur er allt í loft upp innan SÍ. Kjörstjórn samþykkir ekki nýtt framboð. 7. júní 2019 11:53 Sjómannafélagið dæmt til hárra sektargreiðslna Heiðveig María hrósar sigri í Félagsdómi. 26. febrúar 2019 15:46 Stjórn SÍ býður Heiðveigu Maríu að koma aftur í félagið Fær að sitja í samninganefnd sjómanna á fiskiskipum. 7. mars 2019 15:00 Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Reikna með gosi í lok mánaðar Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Innlent Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Innlent Fleiri fréttir Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Afgerandi niðurstaða um þjóðarmorð og óþreyjufullir foreldar á Nesinu Sósíalistar vilja Sönnu burt en hún kveðst koma af fjöllum Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ „Ég veit ekki hversu hátt þarf að öskra orðið þjóðarmorð“ Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Stöðugildum á vegum ríkis fjölgaði um rúm 500 á síðasta ári Reikna með gosi í lok mánaðar Rændi bíl í Veiðivötnum og ók undir áhrifum af vettvangi Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Merki um að gjá í samfélaginu sé að stækka Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Stjórnvöld ætli að hafa yfirhöndina gagnvart skipulögðum glæpahópum Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels Lokun Sorpu á Dalvegi enn frestað Munu áfram stýra fastanefndunum Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Eldur í geymslu í blokk á Selfossi Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Flestir sem skráðu sig í Skorradalshrepp fá að kjósa Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Sló töskunni í vélarhlíf lögreglubifreiðar „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum Sjá meira
Félagar í Sjómannafélaginu krefjast nýrra kosninga Stjórn Sjómannafélags Íslands vill nú ná sáttum við Heiðveigu Maríu. 6. mars 2019 15:53
Dómur Heiðveigu í vil kom Bergi „verulega á óvart“ Stjórn Sjómannafélags Íslands fundar á morgun vegna málsins. 26. febrúar 2019 21:03
Heiðveig María segir ljóst að Sjómannafélagið ætli ekki í kosningar Enn og aftur er allt í loft upp innan SÍ. Kjörstjórn samþykkir ekki nýtt framboð. 7. júní 2019 11:53
Sjómannafélagið dæmt til hárra sektargreiðslna Heiðveig María hrósar sigri í Félagsdómi. 26. febrúar 2019 15:46
Stjórn SÍ býður Heiðveigu Maríu að koma aftur í félagið Fær að sitja í samninganefnd sjómanna á fiskiskipum. 7. mars 2019 15:00
Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels