Ilhan Omar, fulltrúadeildarþingmaður demókrata frá Minnesota, og Rashida Tlaib, fulltrúadeildarþingmaður demókrata frá Michigan, hafa verið skotspónn rasískra árása Trump forseta undanfarið. Þær voru á meðal fjögurra þeldökkra þingkvenna sem Trump sagði að „fara aftur þangað sem þær komu frá“ á dögunum. Þrjár þeirra eru fæddar í Bandaríkjunum en Omar kom þangað sem flóttamaður sem barn.
Forsetinn hefur leynt og ljóst þrýst á ríkisstjórn Ísraels að meina þingkonunum tveimur um landvistarleyfi. Þær hafa báðar talað máli Palestínumanna og stutt sniðgöngu á Ísrael til að þrýsta á um að hernámi á landsvæðum Palestínumanna verði hætt. Þær ætluðu að heimsækja Vesturbakkann á sunnudag. Tlaib er af palestínskum ættum.
Tzipi Hotovely, aðstoðarutanríkisráðherra Ísraels, staðfesti í dag að Omar og Tlaib yrði bannað að koma til Ísraels, að sögn Reuters.
Fyrr í dag hafði Trump aukið þrýstinginn á ríkisstjórn Ísraels með tísti um þingkonurnar.
„Það sýndi mikinn veikleika af Ísrael leyfði Omar og Tlaib að heimsækja. Þær hata Ísrael og alla gyðinga og það er ekkert sem er hægt að segja eða gera til að telja þeim hughvarf,“ tísti forsetinn.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, vísaði til þess að Omar og Tlaib væru leiðandi baráttu fyrir sniðgöngu gegn Ísrael á Bandaríkjaþingi. Ferðaáætlun þeirra sýndi að eina markmið þeirra hefði verið að styrkja sniðgönguna og hafna lögmæti Ísraelsríkis. Ísrael væri opið fyrir gagnrýnendum og gagnrýni en ekki sniðgöngu sem skaðaði landið.
It would show great weakness if Israel allowed Rep. Omar and Rep.Tlaib to visit. They hate Israel & all Jewish people, & there is nothing that can be said or done to change their minds. Minnesota and Michigan will have a hard time putting them back in office. They are a disgrace!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 15, 2019
Ron Dermer, sendiherra Ísraels í Washington, sagði í síðasta mánuði að bandarískum þingmönnum yrði ekki bannað að heimsækja Ísrael og vísaði til vinasambands ríkjanna. Ekki er ljóst hvers vegna ísraelsk stjórnvöld skiptu um skoðun.
Heimsókn þeirra Omar og Tlaib var skipulögð af Miftah, félagasamtökum Hanans Ashrawi, palestínsks þingmanns. Þær ætluðu meðal annars að heimsækja Hebron, Ramallah og Bethlehem á Vesturbakkanum og hernuminn hluta Austur-Jersúsalem. Einna helst fór fyrir brjóstið á ísraelskum stjórnvöldum að þær ætluðu að heimsækja al-Aqsa-moskuna sem var reist ofan á Musterishæðinni sem er helg gyðingum.
Ekki er ljóst hvort að Stacey Plaskett, þingkonu demókrata frá Jómfrúareyjum, verði einnig bannað að koma til Ísraels en hún ætlaði með þeim Omar og Tlaib. Eins er ekki vitað hvort að starfsliði þeirra sé bannað að koma til landsins.
New York Times segir tilraunir Trump að til að fá erlent ríki til að banna bandarískum ríkisborgurum, hvað þá bandarískum þingmönnum, að koma þangað sé eitt skýrasta brot hans á lýðræðislegum hefðum frá því að hann tók við embætti árið 2017.
Trump hélt áfram árásum sínum á þingkonurnar á Twitter eftir að Ísraelar tilkynntu um ákvörðun sína.
„Þingmennirnir Omar og Tlaib eru andlit Demókrataflokksins og þær HATA Ísrael!“ tísti forsetinn.
Representatives Omar and Tlaib are the face of the Democrat Party, and they HATE Israel!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 15, 2019