
Sekt vegna Palestínufána Hatara yrði ekki há

Keppnin fór fram í strandborginni Tel Aviv í Ísrael í maí síðastliðnum. Mikið umtal skapaðist hér á landi um réttmæti þess að taka þátt í keppni í Ísrael í ljósi málefna Palestínu. Voru meðlimir Hatara hvattir til þess að sniðganga keppnina, rétt eins og áhorfendur hér heima.
Hatari steig þó á svið í tvígang í Tel Aviv, í undanriðli og svo í úrslitum. Að loknum úrslitunum þegar stigagjöf fór fram drógu meðlimir sveitarinnar upp klúta merktum með fána og nafni Palestínu. Öryggisgæsla vatt sér fljótt upp að íslenska hópnum og gerði klútana upptæka.
Að sögn Rúnars Freys hefur ekki komið til tals að Íslandi verði meinuð þátttaka í Eurovision 2020 sem fram fer í Rotterdam í Hollandi, eins og sumir hefðu óttast og aðrir hefðu óskað eftir. Atvikið vakti hörð viðbrögð til að mynda í Ísrael.
Rúnar segir þá enn frekar að komi til þess að sektir verði lagðar á RÚV verði sektarfjárhæðin ekki há.
Tengdar fréttir

„Það felst engin árás í því að halda fána á lofti“
Bashar Murad er palestínskur tónlistarmaður búsettur í Austur-Jerúsalem. Hann er ötull baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks og reynir með list sinni storka staðalímyndum.

Magnús Geir hrökk í kút þegar Hatarar veifuðu palestínsku borðunum
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, viðurkennir að hann hafi hrokkið svolítið í kút þegar hann sá liðsmenn Hatara veifa palestínsku borðunum í stigagjöfinni á laugardagskvöldið. Hann er engu að síður mjög sáttur við framlag Íslands og segir Hatara stórkostlegan gjörningahóp.

Palestínufáninn á lofti þegar Hatari birtist á skjánum
Liðsmenn Hatara standa með Palestínu. Þetta vissu þeir sem til þekkja en nú náðu skilaboðin til líklega um 200 milljóna í heiminum.

„Eurovision fór fram í Tel Aviv á meðan fólk þjáðist aðeins örfáum kílómetrum í burtu“
Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad segir það hafa verið mikilvægt að gefa út lag hans og hljómsveitarinnar Hatara á þessum tímapunkti, skömmu eftir að Eurovision fór fram í Tel Aviv, til þess að minna heimsbyggðina á það ástand sem þar ríkir.

Matthías um útspil Hatara: „Þetta er allt samkvæmt áætlun“
Liðsmenn íslenska Eurovision-hópsins voru brattir eftir að úrslitakvöldinu lauk.

Vonar að ferðin hafi breytt skoðun Hatara
Aðstoðarsendiherra Ísraels í Ósló telur Eurovision ekki hafa verið réttan vettvang fyrir Hatara til þess að tjá pólitískar skoðanir sínar. Hann segir sendiráðið trúa á tjáningarfrelsið og ekki eiga í vandræðum með gagnrýni Hatar

Ekki einu sinni allir Hatarar vissu að fánanum yrði veifað
Sú ákvörðun Hatara að halda á palenstínska fánanum í beinni útsendingu í lok Eurovision í kvöld var ekki á vitorði allra í hljómsveitinni.