JaVale McGee er nú leikmaður Los Angeles Lakers liðsins en hann lék áður með Golden State Warriors og varð meðal annars tvisvar sinnum NBA-meistari með félaginu.
Innbrotsþjófarnir höfðu talsvert upp úr krafsinu því þeir komust yfir meira en tvö hundruð þúsund Bandaríkjadali sem og skartgripi í innbrotinu. Tvö hundruð þúsund dalir eru meira en 25 milljónir íslenskra króna.
JaVale McGee's House Burglarized, NBA Championship Ring Stolen https://t.co/vZQA6TMsKG
— TMZ (@TMZ) September 3, 2019
TMZ sagði frá innbrotinu og þar kom fram að þjófarnir hafi komist yfir annan af meistarahringjum JaVale McGee frá því að hann var leikmaður meistaraliðs Golden State Warriors 2017 og 2018.
Innbrotsþjófarnir tóku með sér tvo peningaskápa af heimili McGee. Þeir komu inn á laugardaginn en McGee áttaði sig ekki á því fyrr en á þriðjudag.
Það kemur ekki fram í frétt TMZ um hvorn hringurinn var um að ræða en þjófarnir tóku líka skíðagleraugun sem JaVale McGee fagnaði titlinum með í klefanum eftir annan NBA titilinn.
Lögreglan er með málið í rannsókn en lögreglumenn eru að skoða efni úr öryggismyndavélum. Það hjálpaði örugglega ekki til að þjófarnir fengu nokkra daga forskot.