Bandaríkjamenn höfðu ekki tapað í 13 ár en eru búnir að tapa tveimur leikjum á jafn mörgum dögum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2019 13:06 Serbar byrjuðu leikinn af miklum krafti og 25 stigum yfir eftir 1. leikhluta, 32-7. vísir/getty
Eftir að hafa ekki tapað keppnisleik í 13 ár hefur bandaríska karlalandsliðið í körfubolta tapað tveimur leikjum á jafn mörgum dögum. Bandaríkin töpuðu fyrir Frakklandi, 79-89, í 8-liða úrslitum á HM í Kína í gær. Í dag tapaði bandaríska liðið svo fyrir því serbneska, 94-89, í leik um réttinn um að fá að spila um 5. sæti mótsins. Bandaríkjamenn byrjuðu leikinn skelfilega og lentu strax 11-2 undir. Að 1. leikhluta loknum voru Serbar 25 stigum yfir, 32-7. Bandaríska liðið tók sig taki í 2. leikhlutanum sem það vann, 33-12. Staðan í hálfleik var 44-40, Serbíu í vil. Serbar voru alltaf feti framar í seinni hálfleik og unnu á endanum fimm stiga sigur, 94-89. Harrison Barnes skoraði 22 stig fyrir Bandaríkin og Kemba Walker var með 18 stig og átta stoðsendingar. Bogdan Bogdanovic var stigahæstur Serba með 28 stig. Vladimir Lucic skoraði 15 stig. Pólland og Tékkland mætast seinna í dag. Sigurliðið mætir Serbíu í leiknum um 5. sætið en tapliðið Bandaríkjunum í leiknum um 7. sætið.
Körfubolti Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti Fleiri fréttir Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Sjá meira