Einn látinn og níu særðir eftir sverðaárás í finnskri verslunarmiðstöð Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2019 11:21 Kuopio er að finna um 350 kílómetrum norður af Helsinki. Árásin átti sér stað í verslunarmiðstöðinni Herman. AP
Einn er látinn og níu manns hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir árás í starfsmenntamiðstöð í verslunarmiðstöð í finnska bænum Kuopio í morgun. Finnskir fjölmiðlar segja að óþekktur maður hafi þar ruðst inn í bekkjarstofu vopnaður sverði. Lögregla greinir frá því á Twitter að lögreglumenn hafi skotið úr byssum eftir að komið var á vettvang. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins og hefur lögregla girt af svæðið í kringum miðstöðina. Árásin átti sér stað í Savolax-starfsmenntamiðstöðinni í verslunarmiðstöðinni Herman. Er hana að finna um fjórum kílómetrum suður af miðborg Kuopio. Hinir slösuðu hafa verið fluttir á háskólasjúkrahúsið í borginni. Tilkynning barst lögreglu um árásina 12.50 að staðartíma, eða 9:50 að íslenskum tíma. Kuopio er að finna um 350 kílómetrum norður af Helsinki, höfuðborg Finnlands.
Finnland Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira