29 ár síðan Grindavík tapaði síðast þremur fyrstu leikjum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. október 2019 16:15 Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkurliðsins, fæddist rúmum mánuði eftir síðustu martraðarbyrjun liðsins í úrvalsdeild karla. Vísir/Daníel
Grindvíkingar hafa tapað þremur fyrstu leikjum sínum í Domino´s deild karla í körfubolta eftir tap á móti Haukum í gær. Það er óhætt að segja að slíkt gerist ekki á hverju ári. Grindvíkingar hafa tapað á móti KR, Keflavík og Haukum í fyrstu þremur leikjum sínum í ár og þetta var því allt annað en létt byrjun hjá liðinu að þessu sinni. Það breytir ekki því að Grindavíkurliðið er búið að jafna metið yfir verstu byrjun félagsins í úrvalsdeild karla. Það þarf að fara allt aftur til tímabilsins 1990 til 1991 ætli menn að finna jafnslæma byrjun Grindvíkinga á Íslandsmóti karla í körfubolta. Grindvíkingar töpuðu líka þremur fyrstu leikjum sínum í október 1990 sem voru á móti Þór Akureyri, Keflavík og Tindastól. Fyrsti sigur tímabilsins vannst í fjórða leik og liðið endaði síðan í þriðja sæti deildarinnar um vorið. Grindvíkingar byrjuðu ekki mikið betur í fyrra en þá tapaði liðið tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum. Grindvíkingar eru því aðeins með 17 prósent sigurhlutfall í fyrstu þremur umferðunum undanfarin tvö tímabil, einn sigur í sex leikjum. Aðeins tveir leikmenn Grindvíkinga í leiknum á móti Haukum voru fæddir þegar Grindvíkingar töpuðu síðast þremur fyrstu leikjum sínum og þjálfarinn Daníel Guðni Guðmundsson var aðeins fjögurra ára. Leikmennirnir sem voru fæddir þá voru þeir Valdas Vasylius og Davíð Páll Hermannsson.Versta byrjun Grindavíkur í úrvalsdeild karla:0-3 1990-91 2019-201-2 1992-93 1996-97 2001-02 2014-15 2018-19
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira