Líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær hefur Þórdís Kolbrún einnig lagt fram frumvarp um breytta samkeppnislöggjöf með það að markmiði að einfalda framkvæmd og auka skilvirkni. Það frumvarp er þó óskylt þessum breytingum á regluverkinu, en í stóru myndinni er þetta sama verkefnið. „Ég er mjög meðvituð um að það verða tvö atriði í frumvarpinu sérstaklega gagnrýnd, varðandi markaðsrannsóknir og varðandi áfrýjunarheimild, ef þú tekur þær tvær út fyrir sviga þá eru aðrar tillögur gerðar til að létta á eftirlitinu, stytta málsmeðferðartíma og forgangsraða,“ segir Þórdís Kolbrún.
Aðspurð hvort hún búist við tregðu í kerfinu við svo miklar breytingar segist Þórdís Kolbrún ekki hafa fundið fyrir slíku enn. „Við erum að vinna þetta með undirstofnunum og það er alveg skýrt hvert við viljum fara. Ég held að það sé samhljómur um að það sé ekki óþarfa regluverk, svo getur okkur greint á um hvað er óþarfi og hvað ekki.“

„Við í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu erum með flókið regluverk, bæði í reglugerðum og lögum, og ekki síður í leyfisveitingum undirstofnana. Við ætlum að taka til í þessum efnum og einfalda sem mest það umhverfi sem atvinnurekstrinum er ætlað að starfa innan, við erum að stíga fyrsta skrefið í þá átt,“ segir Kristján Þór. Ekki er þó um að ræða neinar grundvallarbreytingar. „Við erum fyrst og fremst að taka til, henda út úreltu regluverki sem hefur engan tilgang, hefur bara hangið inni í kerfinu.“
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins binda ráðherrarnir vonir við að önnur ráðuneyti ráðist í sams konar aðgerðir, þá sérstaklega þau sem stjórnað er af öðrum Sjálfstæðismönnum. Einnig er vonast til að sveitarstjórnarstigið taki þessar aðgerðir til sín og einfaldi eigið regluverk.