Munaðurinn og dýrðin sem Kristín missti af Jakob Bjarnar skrifar 12. nóvember 2019 15:03 Bretaprins verndari staðarins sem neitaði að hleypa Kristínu Edwald inn á í London á dögunum.
Veitingastaðurinn, eða klúbburinn, sem meinaði Kristínu Edwald lögmanni og veiðikonu inngöngu, er The Flyfisher´s Club sem er til húsa við Brook Street, fyrir ofan Savile Club. Kristín fékk ekki að fara inn einfaldlega vegna þess að staðurinn er einungis opinn körlum. Vísir greindi frá málinu í síðustu viku og vakti frásögnin verulega athygli enda hljómar það fornfálega í eyrum Íslendinga að staður vilji setja sér slíkar reglur ári 2019. Kristín sagði við það tækifæri að hún vildi ekki sætta sig við mismunun af neinu tagi.Verndari félagsins er sjálfur Karl Bretaprins Samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða stangveiðiklúbbinn Flyfisher´s Club og er þar um að ræða verulega gróna stofnun. Félagið var stofnað árið 1884 og státar það af því að meðal félaga eru ýmsir frægir veiðimenn. Þeirra helstur hlýtur að teljast sérlegur verndari staðarins sem er sjálfur Karl Bretaprins. Karl er auðvitað þekktur stangveiðimaður og hefur komið oft til Íslands til að renna fyrir lax.Flyfisher´s Club leggur mikið uppúr góðu bókasafni þar sem fræðast má um alla þætti hinnar eðlu listar sem er fluguveiðin.Óhætt er að segja, þegar saga félagsins er skoðuð, að þar sé haldið fast í hefðirnar. Stefnan hefur verið hnoðuð saman í eftirfarandi þrjú atriði í lauslegri þýðingu Vísis:Stuðla að samneyti herramanna sem hafa helgað sig fluguveiði almennt.Finna leiðir til að samskipti milli þeirra sem eru áhugasamir um hina dásamlegu list megi verða sem best og mest.Leggja til lesstofu þar sem finna má lesefni á ýmsum tungumálum hvar fjallað er um veiði, einkum fluguveiði, til að viðhalda þekkingu og upplýsingum um staði þar sem þar sem sveifla má stöng og gera að aðsetri upplýsinga um hvaðeina er viðkemur hinni eðlu listgrein.Öruggt og notalegt athvarf stangveiðimannsinsÁ heimasíðu The Flyfisher´s Club eru meðlimir hvattir til að líta á hin glæsilegu húsakynni sem sinn eftirlætis veiðikofa þar sem háttvísi og notalegt andrúmsloft er í fyrirrúmi. Þar eigi menn víst athvarf frá ysi og þys stórborgarinnar og yfir höfugum vínum á skaplegu verði og dýrindis matseðli sé upplagt að rifja upp ómetanlegar stundir á árbakkanum; baráttu við fisk hvort heldur sá slagur tapaðist eða vannst.Kannski hafa það verið þessir sem komu í veg fyrir það að Kristín fengi að fara inn í þetta athvarf stangveiðiherramannsins.Kristín Edwald er ekki sú eina sem sett hefur hornin í þessar reglur um að einungis karlmenn megi koma þar inn fyrir dyr.Lögmenn snéru uppá ný lög og bönnuðu konur alvegDaily Mail fjallaði um staðinn fyrir nokkrum árum og þá einmitt í samhengi við það að Karl Bretaprins er sérlegur verndari hans og þá þetta bann við konum. Þar er greint frá því hvernig lögmenn staðarins brugðust við jafnréttislögum sem Harriet Harman kynnti á Bretlandseyjum árið 2010 og ætlað var að taka á mismunun gegn konum. Áður var það svo að meðlimir máttu bjóða gestum og þá konum við sérstök tækifæri þar inn en þó ekki til kvöldverðar eða hádegisverðar. Túlkun lögmanna The Flyfisher´s Club var að lögin þýddu einfaldlega það að þeir þyrftu þá að skilgreina staðinn alfarið fyrir karlmenn og þeir hörmuðu að þeim væri ekki lengur fært að bjóða konum á staðinn. Varla hefur það verið ætlunin með hinum nýju lögum. Í umfjöllun Daily Mail er vitnað í Fionu Amstrong, fyrrum fréttaþul hjá BBC, sem ritað hefur bækur um fluguveiðar. Hún segist gjarnan vilja vera meðlimur í þessum virðulega klúbbi, og það sé synd og skömm að það skuli ekki vera inni í myndinni; margar konur séu einmitt góðir stangveiðimenn og að það hafi verið kona sem veitt hefur stærsta laxinn sem fengist hefur á flugu. Fiona sótti um aðild en fékk þau svör að konur væru ekki velkomnar. Hún hefur birst í tímariti sem þeir gefa út, Flyfishers´Journal og þykir skjóta skökku við að það sé hægt að birta mynd af henni þar en ekki veita henni aðgengi að félaginu. Henni þykir að á 21. öldinni væri ráð að vera sveigjanlegri í þessum efnum.
Íslendingar erlendis Stangveiði Veitingastaðir Tengdar fréttir Fékk ekki að borða á veitingastað í London því hún er kona Kristín Edwald, lögmaður og veiðikona, segist aldrei þessu vant hafa orðið kjaftstopp þegar henni var tjáð í stangveiðiklúbbi í London í dag að konur væru ekki leyfðar á veitingastaðnum. 7. nóvember 2019 17:05 Mest lesið Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Viðskipti innlent Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Erlent Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Sjá meira
Fékk ekki að borða á veitingastað í London því hún er kona Kristín Edwald, lögmaður og veiðikona, segist aldrei þessu vant hafa orðið kjaftstopp þegar henni var tjáð í stangveiðiklúbbi í London í dag að konur væru ekki leyfðar á veitingastaðnum. 7. nóvember 2019 17:05